eyjan.is

Miðvikudagur 18.11.2009 - 10:50 - Ummæli ()

Seðlabankastjóri Evrópu hótaði að keyra íslensku bankana í þrot vegna gerviviðskipta

jean-claude-trichet2.jpgÍ lok apríl 2008 hringdi Jean-Claude Trichet, aðalbankastjóri Seðlabanka Evrópu, ævareiður í Davíð Oddsson seðlabankastjóra, og hótaði að grípa til aðgerða sem myndu leiða til þess að íslensku bankarnir yrðu gjaldþrota innan tíu daga.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í bók Styrmis Gunnarssonar, Umsátrið – Fall Íslands og endurreisn, þar sem hann fjallar um aðdraganda þess að íslenskt efnahagslíf hrundi í fyrrahaust.

umsatrid-bok-styrmis.jpgBókin kemur út á föstudaginn.

Eyjan greindi fyrr í dag frá upplýsingum í bók Styrmis um að breska fjármálaeftirlitið hafi hótað að loka Landsbankanum vorið 2008 og 400 milljarða leyniláni sem bankinn vildi fá frá Seðlabankanum. Þá greindi Eyjan frá vangaveltum í bókinni um að landsdómur yrði kvaddur saman til að fjalla um ábyrgð ráðherra í ríkisstjórn Geirs H. Haarde á bankahruninu.

Styrmir Gunnarsson segir í bók sinni að Trichet hafi haldið því fram, að íslensku bankarnir stunduðu óeðlileg gerviviðskipti við Seðlabanka Evrópu í gegnum Seðlabanka Lúxemborgar, hann hafi krafist þess, að fulltrúar íslensku bankanna kæmu  til fundar í Lúxemborg strax eftir þá helgi og að með þeim kæmu fulltrúar frá Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitinu. Engar afsakanir yrðu teknar gildar og framferði þeirra gæti leitt til þess, að bankarnir færu á hausinn innan tíu daga. Styrmir segir að ásökun Trichet hafi verið sú, að íslensku bankarnir hefðu náð 4 milljörðum evra út úr Seðlabanka Evrópu nánast með því að brjóta settar reglur.

Nokkuð hefur verið fjallað um þessa fyrirgreiðslu Landsbankans hjá Seðlabanka Evrópu á sínum tíma. Sjá t.d. eldri fréttir á Eyjunni hér og hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is