eyjan.is

Miðvikudagur 18.11.2009 - 08:10 - Ummæli ()

Styrmir í nýrri bók: Ráðherrar ákærðir fyrir vanrækslu og stefnt fyrir landsdóm?

rikisstjorn-geirs-haarde.jpgEinhverjir ráðherrar í ríkisstjórn Geirs H. Haarde kunna að verða látnir svara til saka vegna bankahrunsins í fyrrahaust samkvæmt sérstökum lögum um ráðherraábyrgð og dregnir fyrir landsdóm. Það hefur aldrei áður gerst á Íslandi.

Þetta er mat Styrmis Gunnarssonar, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins. Í bók hans Umsátrið – Fall Íslands og endurreisn, sem kemur út hjá bókaforlaginu Veröld í dag, er spurt hvort aðgerðir eða aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar í aðdraganda hrunsins kunni að varða við lög um ráðherraábyrgð. Styrmir ræðir þann möguleika að einhverjir ráðherrar í ríkisstjórn Geirs H. Haarde verði dregnir fyrir landsdóm. Hann telur ekki útilokað að fleyg ummæli Páls Hreinssonar, formanns rannsóknarnefndar Alþingis, um að engin nefnd hafi orðið að flytja þjóð sinni jafn erfið tíðindi hafi verið til þess að undirbúa landsmenn fyrir þetta.

Frá þessu er sagt í Morgunblaðinu í dag.

Fram kemur í endursögn Morgunblaðsins í dag að Styrmir bendi á að það verði Alþingis að ákveða hvort ráðherrum skuli stefnt fyrir landsdóm. Leggi rannsóknarnefndin slíkt til, komi það í hlut einhverra þingmanna, sem sátu á Alþingi bæði fyrir og eftir kosningar 2007, „að taka ákvörðun um, hvort félagar þeirra og vinir í þingflokkum Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hafi gerzt brotlegir við ákvæði laga um ráðherraábyrgð, og verði þess vegna fyrstu ráðherrarnir í gervallri Íslandssögunni, sem fái á sig slíka ákæru.“  Styrmir segir að þingmenn þessara flokka, sem sátu á þingi fyrir kosningarnar 2009 geti talist meðábyrgir fyrir aðgerðum eða aðgerðarleysi þáverandi ríkisstjórnar og spyr hvort þeir af þeim sökum séu hæfir til að taka þátt í afgreiðslu slíkrar tillögu á Alþingi.

Orðrétt segir Styrmir síðan í bókinni: „Margir þingmenn mundu líta svo á, að Alþingi ætti engan annan kost en fylgja tillögu rannsóknarnefndarinnar um ákæru á grundvelli laga um ráðherraábyrgð og landsdóm eftir, kæmi hún fram. Þjóðin mundi áreiðanlega skiptast í tvo hópa. Sumir mundu líta á það sem hneyksli að ganga svo langt í uppgjöri vegna bankahrunsins að ákæra ráðherra á grundvelli laga um ráðherraábyrgð. Aðrir mundu telja, að það væri nauðsynlegt að láta á það reyna fyrir dómi, hver ábyrgð ráðherra væri. Slík málsmeðferð yrði til þess að ráðherrar í ríkisstjórnum framtíðarinnar mundu gæta sín vel bæði á því, sem þeir gerðu og líka hinu, sem þeir létu ógert.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is