Útrásarvíkingarnir skrá lögheimili sín í útlöndum til að losna við ábyrgð á hruninu
Lögmenn þekktra íslenskra útrásarvíkinga hafa að undanförnu unnið því að færa lögheimili þeirra úr landi til að ekki sé hægt að stefna þeim til riftunar fjármálagjörningum eða setja þá í þrot fyrir íslenskum dómstólum vegna mála sem tengjast bankahruninu í fyrrahaust.
Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag.
Blaðið segir að slitastjórnir og skilanefndir gömlu bankanna þriggja geti ekki rift fjármálagjörningum þeirra hluthafa, stjórnenda, starfsmanna bankanna og annarra sem mögulega fengu óeðlilega fyrirgreiðslu hjá bönkunum ef viðkomandi sé með lögheimili erlendis. Þetta sé vegna varnarþingsreglna.
„Þetta þýðir að ekki er hægt að rifta þeim samningum sem gerðir voru eða viðskiptum sem gerð voru í aðdraganda bankahrunsins,“ segir Viðskiptablaðið.
Blaðið segir að sá tími sem slitastjórnirnar hafi til að rifta kröfum þyki allt of skammur. Verði hann ekki lengdur sé hætt við því að mörg riftunarhæf mál falli utan tímarammans.
Fram kemur slitastjórnir og skilanefndir Kaupþings, Landsbanka og Glitnis hafi sent sameiginlegt bréf til efnahags- og viðskiptaráðuneytisins í síðustu viku til að vekja athygli á þessu.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
