Fimmtudagur - 19.11 2009 - 10:36 - Ummæli ()

Varaformenn flokkanna í blaða- grein: Landsmenn snúi bökum saman og horfi til framtíðar

folk17juni1.jpgVaraformenn fjögurra stærstu stjórnmálaflokka landsins birta í dag sameiginlega grein í Fréttablaðinu þar sem þeir segja að þjóðfundurinn um síðustu helgi sýni að mörgum finnist kominn tími til að landsamenn snúi saman bökum og hyggi að framtíðinni. Á fundinum hafi jákvæðni og framtakssemi verið í öndvegi. Það sé viðhorf sem þjóðin þurfi mjög á að halda og allir ættu að fylkja sér um, óháð stjórnmálaskoðunum.

Sjaldgæft er að forystumenn ólíkra flokka tali einni röddu með þessum hætti. Tilefni skrifa þeirra er alþjóðlega athafnavikan sem nú er í gangi. Undir hennar hatti er efnt til um eitt hundrað viðburða hér á landi. Varaformennirnir segja að mikil þátttaka þar sýni þá athafna og sköpunargleði sem þjóðin búi yfir. Hvort sem fólk finni orku sinni farveg í rekstri fyrirtækja, sköpun menningar, nýsköpun í vísindum eða með því að vinna góðverk fyrir náunga sinn þá geti hver og einn komið miklu til leiðar og haft jákvæð áhrif áumhverfi sitt og samfélag.

„Hið öfluga sjálfboðaliða- og hugsjónastarf sem fólk innir af hendi um land allt um þessar mundir er svo sannarlega þakkarvert. Við hvetjum alla til að styðja jákvætt frumkvæði og taka þátt í því. Það er mikilvægt að við stöndum saman um þá fjölmörgu hluti sem við erum öll sammála u,“ segja varaformennirnir.

Undir greinina rita nöfn sín Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar