eyjan.is

Föstudagur 20.11.2009 - 19:17 - Ummæli ()

Dómur um Rautt brennur fyrir í Borgarleikhúsinu: Það er erfitt að vera ungur

rautt-brennur-fyrir.jpgHeiðar Sumarliðason höfundur, Rautt brennur fyrir, skrifar langa grein um sjálfan sig í leikskrá. Hún lýsir leitandi ungum manni og það gerir einnig þetta fyrsta verk hans í atvinnuleikhúsi sem frumsýnt var í gærkvöldi. Það byrjar á nokkuð grófri  kynningu á persónunum, ungum elskendum, Maríu (Dóra Jóhannsdóttir)  sem er hörð, Kristjáni (Jörundur Ragnarsson) sem er mjúkur. Karenu (Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir) sem er veik, Garðari (Sveinn Ólafur Gunnarsson) sem er stór og sterkur. Við sjáum þau sjálfsupptekin, ófullnægð saman, við sjáum þau sjálfsupptekin ófullnægð ein. Ofbeldisverk sprottið úr ófullnægjunni og einmanaleika tengir loks pörin og úrvinnslan á því. Klippt er á milli stuttra samtala, langra eintala, tölvusamskipta, samskipta við sal. Tilvitnanir í engilsaxneskan menningarheim eru margar jafnt í texta sem tónlist en séra Jón gamli Vídalín fær líka að fljóta með.

Finnur Arnar Arnarsson dregur upp grunnteikningu af íbúð sem bakgrunn fyrir  pörin, þar fyrir framan til vinstri, einn sófi með hvítri yfirbreiðslu: Heimili Kristjáns og Maríu. Til hægri eitt einfalt borð og tveir stólar: Heimili Garðars og Karenar. Leikararnir fá að ljúka við leikmyndina með skemmtilegri vísun í teiknimyndir. Á bakveggnum eiga líka netsamkipti sér stað og einnig má nota uppistöðuna í bakmyndinni líkt og steinlasa leikhúsforfeðra. Þetta er kaldur heimur, drættirnir fáir og hæfa vel verkinu.

Kristín Eysteinsdóttir leggur sig alla fram við að gera verkið að ”smartri” leiksýningu. Og ef það tekst ekki alveg sem skyldi þá er sjaldnast við hana að sakast. Fín er hugmyndin að láta alla leikarana fjóra flytja innri mónólóga  gegnum míkrófóna og vel er unnið tæknilega úr samfarasenu og ofbeldisverki  sem svo auðveldlega verða  hallærisleg í leikhúsi. Tónlist Franks Hall og lýsing Björns Bergsteins Guðmundssonar og Magnúsar Helga Kristjánssonar styðja ágætlega form sýningarinnar.

Þær eru ekki margbrotnar persónurnar sem leikararnir þurfa að túlka, en besta hugmynd verksins liggur þó í hvörfunum sem verða í þeim við ofbeldisverkið. Jörundur Ragnarsson lýsir vel hinum góðlynda Kristjáni og erfiðleikum hans við að ná sambandi við Maríu. Umbreyting hans í lokin er ekki alveg eins sannfærandi enda illa undirbyggð í texta og mótleikari hans Dóra Jóhannsdóttir gerir honum heldur ekki auðvelt fyrir; sambandsleysi hennar, vöntun á hlustun og samspili er því miður ekki leikin. Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir þreytir hér frumraun sína í leikhúsi og nýtir sér vel og greindarlega það litla sem hún fær að moða úr. Hún býr til sjálfmiðaða konu sem leikur ákveðið hlutverk til að ná sínu fram í samskiptunum við makann og hvörfin í lokin eru velunnin og koma á óvart. Það er eitthvað heillandi við Svein Ólaf Gunnarsson og ýmislegt gerir hann hér vel en tækni leikarans þarf hann að þjálfa betur.

Niðurstaða: Höfundur hefði mátt taka sér lengri tíma til að vinna verkið. Það lofar góðu í byrjun, nær ákveðinni stígandi en lufsast svo niður lokin. Ég las því miður leikskrána, eins og áður segir, þegar ég kom heim eftir sýningu. Mér finnst að höfundur ætti að setjast niður með velviljuðu, velmenntuðu, hreinskiptnu fólki, sem talar íslensku, og ræða þá ritsmíð sína í þaula áðuren hann byrjar á næsta verki.
 

María Kristjánsdóttir

Rautt brennur fyrir. Höfundur: Heiðar Sumarliðason . Leikstjóri Kristín Eysteinsdóttir. Leikmynd og búningar: Finnur Arnar Arnarsson. Tónlist: Frank Hall Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson og Magnús Helgi Kristjánsson  Myndband: Jón Þorgeir Kristjánsson  Gervi: Sigríður Rósa Bjarnadóttir Leikarar: Jörundur Ragnarsson, Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson og Dóra Jóhannsdóttir. Frumsýning á Nýja sviði Borgarleikhússins, fimmtudaginn 19. nóvember, 2009, kl.20.00.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is