eyjan.is

Mánudagur 23.11.2009 - 09:45 - Ummæli ()

Leikdómur: Jesús litli í Borgarleikhúsinu. Trúðar gramsa í guðspjöllunum

jesus-litli.jpgÞað má gera ráð fyrir að þessi sýning Borgarleikhússins gangi lengi. Efniviðurinn sprottinn úr helgisögnum sem fylgt hafa þjóðinni í aldir. Trúaðir jafnt sem vantrúarhundar geta hlegið þar saman að frásögnum trúðanna, Barböru, Bellu og Úlfars,a f því þegar Jesús litli kom í heiminn í Palestínu. Gildin sem þar eru boðuð smella ekki á eyrunum eins og svipuhögg ímyndarsmiða. Það óvænta gerist, áhorfandinn verður allur mjúkur, langar til að faðma að sér heiminn, ekki bara þetta sker, heldur allt sem lifir.

Annað óvænt gerist líka, það er unnið útfrá grundvallarhugmynd og allt gengur upp. Snorri Freyr Hilmarsson hefur mér lengi þótt einn af okkar fremstu leikmyndateiknurum en í samvinnu við þennan leikstjóra, Benedikt Erlingsson, þennan leikhóp, gerir hann sína bestu leikmynd til þessa. Úr hráum efniviði skurðstofu – ofurstóru kringlóttu ljósi í lofti, einu skilrúmi, einum bekk á hjólum, hjólaborðum,hvítum lökum og sjúkrahússtryllitækjum einsog bekkenum, hnífum,töngum,- verður flest til sem trúðar þurfa til að segja sögur sínar. Hugmyndaflug áhorfenda er virkjað, bekken verða að hjálmum rómverskra hermanna, stáldiskur að jarðsprengju, hvítt lín að barni. Þar er líka fegurð. Himnar opnast og fallegast þó ljós heimsins sem kviknar í líkama Maríu leikinni af Barböru trúð.

Hin konan sem leikur Barböru,Halldóra Geirharðsdóttir, skapar margt fallegt og fyndið í sýningunni til dæmis unglinginn útlimalanga og tíma býr hún jafnvel til – langan og góðan. Bergur Þór Ingólfsson maðurinn sem leikur Úlfar bregður sér í öll karlmanna kvikinda líki, Jósef er hann og Heródes, rómverskur hermaður og Lasarus og fáir leika það eftir honum að kippa heilum sal úr hlátri í viðkvæma samúð með til dæmis þeim sem hvern dag þurfa að hreyfa sig af varúð yfir jarðsprengjusvæði. Jazzsöngkonan góða, Kristjana Stefánsdóttir, semur tónlist og útsetur. Hún byrjar með miklum látum og lúðrablæstri svo um hríð heldur áhorfandinn að hann sé kominn til að sjá óperu í himneskum sápustíl en það reynist bara intróið og stef úr því skjóta aðeins upp í kollinum hér og þar í sýningunni eftirleiðis.Hún leikur líka brosandi trúðinn Bellu sem leikur meðal annars Gabriel erkiengil af miklum bravúr og Benedikt Erlingssyni tekst ákaflega vel að tefla henni og hæfileikum hennar móti þrautþjálfuðum trúðunum tveimur þannig að hvorki dregur úr þéttleika sýningarinnar eða gæðum en gamanið eykst.

Textinn og kveðskapur er vel smíðaður af þeim Benedikt, Bergi og Halldóru. Hversu mikið er spunnið er ekki alveg ljóst og aðeins ein setning stingur í eyrun, greining Barböru á hruninu sem er á skjön við annað í sýningunni. Að venju eru trúðarnir í sambandi við salinn, að venju eru margir tímar í tímanum, að venju er það oft fáránleg og óvænt sýn elskulega trúðsins á hlutina sem framkallar hlátur. En Benedikt Erlingsson er nýr í samhenginu og með honum kemur meiri dýpt í allan gleðskapinn.

Ég er ekki frá því að Borgarleikhúsið ætti að bjóða borgarfulltrúum, alþingismönnum og ríkisstjórn á sýningu svona til að minna þau á hin einu sönnu alþjóðlegu gildi.

María Kristjánsdóttir

Jesús litli. Frumsýning á litla sviði Borgarleikhússins, 21.nóvember,2009,klukkan 20.00. Höfundar: Benedikt Erlingsson, Bergur Þór Ingólfsson,Halldóra Geirharðsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir og Snorri Freyr Hilmarsson. Handrit: Benedikt Erlingsson,Bergur Þór Ingólfsson,Halldóra Geirharðsdóttir. Leikstjóri: Benedikt Erlingsson. Leikmynd og búningar Snorri Freyr Hilmarsson. Lýsing: Kjartan Þórisson. Tónlist,útsetningar og tónlistarstjórn: Kristjana Stefánsdóttir. Leikarar: Kristjana Stefánsdóttir, Bergur Þór Ingólfsson, Halldóra Geirharðsdóttir.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is