Krafist er riftunar af hálfu skiptastjóra Baugs vegna kaupa fyrirtækisins á eigin bréfum fyrir fimmtán milljarða króna í júlí á síðasta ári en seljendur umræddra bréfa voru félög í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Ingibjargar Pálmadóttur og Hreins Loftssonar.
Frá þessu er skýrt í Morgunblaðinu í dag.
Er þar fullyrt að þegar Baugur hafi selt félagið Haga til félagsins 1998 ehf. hafi kaupverðið verið notað að hálfu til niðurgreiðslu skulda hjá Glitni banka og Kaupþingi en helmingur notaðar til kaupa á eigin bréfum.
Að mati skiptastjórans var allt of hátt verð greitt fyrir umrætt bréf á þessum tíma. Falli dómur þrotabúinu í hag þurfa seljendurnir, Jón Ásgeir, Hreinn og Ingibjörg að greiða mismun á kaupverði bréfanna á þessum tíma og raunverulegs virðis þeirra inn í þrotabúið.
Skiptastjórinn hafði áður farið fram að að kaupum 1998 ehf. á Högum yrði rift. Söluverðið hafi verið eðlilegt og engar athugasemdir við það gerðar heldur hafi kröfuhöfum verið gert mishátt undir höfði með þeim gerningi og mismunun átt sér stað. Skuldir hafi hvílt á hlutum sem Baugur keypti gagnvart Kaupþingi og því hafi 25 milljarðar króna af kaupverði Haga sem sami banki hafi lánað fyrir runnið beint aftur til bankans.
Jón Ásgeir Jóhannesson sendi á sínum tíma yfirlýsingu vegna málsins þar sem fram kom að viðskiptin hafi verið gerð með vilja og fullri vitneskju allra helstu lánardrottna félagsins. Baugur hafi verið vel gjaldfær á þessum tímapunkti.
