Fimmtán fyrirtæki fljótlega skráð í Kauphöllina. Markaðurinn talinn tilbúinn.
Allt að fimmtán fyrirtæki gætu bæst við flóru þá sem fyrir er af fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll Íslands á næstu misserum að mati Þórðar Friðjónssonar, forstjóra hennar. Segir hann íslensku bankana hafa lýst áhuga að markaðsvæða þau fyrirtæki sem í höndum þeirra séu.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Slík skráning gætu lægt þær öldur sem verið hafa uppi um eignarhald bankanna á fjölmörgum fyrirtækjum í samkeppnisreksti en síðast í fyrradag var haldinn fundur um þau mál að hálfu Viðskiptaráðs. Komu þar fram áhyggjur margra af reksti bankanna á hundruðum fyrirtækja og slíkt ekki talið af hinu góða þegar til lengdar lætur.
Fari hluti þessara fyrirtækja á markað gæti skapast nauðsynleg sátt um eignarhaldið segir í fréttinni. Um leið gæfi það fjárfestum og almenningi kost á að kaupa bréf í þeim í stað þess að fara með þau beint í söluferli. Slíkt gæti aftur haft þau áhrif að nýtt líf færist í hlutabréfamarkaðinn hérlendis sem verið hefur með daufasta mótinu frá hruni bankanna fyrir rúmu ári síðan.
Þórður segir bankastjóra allra þriggja ríkisbankanna hafa sýnt þessu áhuga og viðræður hafi hafist snemma á árinu. Sérstaklega er áhugi að markaðsvæða fyrirtæki sem komust í hendur bankanna í haust sem leið. „Aðstæður eru fyrir hendi og markaðurinn er tilbúinn. Bankarnir verða sjálfir að ákveða hvaða fyrirtæki þeir telja að séu í þeim búningi að vera markaðshæf og hvort þeir telji hagstætt að fara inn á markaðinn.“
Helmingur umræddra 15 fyrirtækja sem Þórður talar um kunna að koma úr eignaumsýslufélögum bankanna þriggja en meðal fyrirtækja sem eru á skrám þeirra í dag má nefna Húsasmiðjuna, Icelandair Group og hluta Teymis svo fá séu nefnd.
Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Arion banka telur að þessi leið sé góð. „Þetta getur verið mjög hagfelld leið fyrir bankana til að losa um eignahluti þeirra. Það hentar ekki í öllum tilvikum en gæti verið mjög æskileg leið, ef ekki sú besta.“
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
