Mánudagur - 30.11 2009 - 10:18 - Ummæli ()

Úttekt: Síminn fær flestar kvartanir símafyrirtækja á okursíðu dr. Gunna

cell1.jpgSé mið tekið af fjölda kvartana neytenda gagnvart símafyrirtækjum á hinni þekktu okursíðu dr. Gunna stendur Síminn sig áberandi verst þeirra fjögurra aðila sem að kveður á þeim markaði. Kvarta yfir helmingi fleiri yfir okri og almennum skorti á þjónustu hjá Símanum en hjá næsta samkeppnisaðila.

Eyjan hefur tekið saman og greint allar færslur neytenda á hinni þekktu okursíðu dr. Gunna en sú hefur verið starfrækt um rúmlega tveggja ára skeið. Er lítið lát á fjölda þeirra er þar tjá sig enda skiptir nú heildarfjöldi færslna þar þúsundum. Má enda svo heita að sá vefur sé í raun eini vettvangur neytenda í landinu að frátöldum Neytendasamtökunum sjálfum og Talsmanni neytenda. Mun Eyjan nú og á næstu dögum birta niðurstöðurnar í hinum ýmsu þjónustu- og verslunargeirum.

Sé litið til fjarskiptamarkaðarins eru fjórir aðilar hvað stærstir þar. Síminn, Vodafone, Nova og Tal. Öll fyrirtækin fá pillu frá neytendum á okursíðunni en hafa verður í huga að notendafjöldi hjá þessum fyrirtækjum er æði misjafn.

44 einstaklingar hafa talið ástæðu til að skrifa um okur eða þjónustuskort hjá Símanum. Margir þeirra tiltaka tilfelli sem þeir flokka sem hreint okur af hálfu Símans en einnig er töluvert um að fólk skilji einfaldlega ekki þær flóknu reglur sem gilda hjá fyrirtækinu varðandi gjaldskrár og annað í þeim dúr.

Símafyrirtækið Tal fær sinn skerf af kvörtunum og er í öðru sæti með 19 slíkar. Tal varð til með samruna Hive og Sko á sínum tíma og eru þær færslur er tiltaka þau fyrirtæki tekin með í samantektinni. Kvartanir vegna okurs eru nokkrar en margir virðast einnig ósáttir við ýmsar breytingar er urðu á samningum þeirra við innanhúss breytingar hjá Tal.

Vodafone kemur næst með 17 kvartanir alls og að endingu er Nova með fimm slíkar á okursíðu dr. Gunna

Nokkur handahófskennd dæmi má finna hér að neðan.

Ennfremur brýtur Síminn um leið skilmálana sína þar sem að í skilmálum þeirra stendur að verðbreytingar skuli tilkynna skriflega, en ég sem kúnni hjá þeim hef hvorki fengið tilkynningu í gegnum tölvupóst né í venjulegum pósti og rakst eingöngu á þessa verðbreytingu fyrir tilviljun. [...] Ég tel þetta brot á skilmálum og ætla að láta reyna á uppsögn mína á ADSL viðskiptum þeirra vegna brota á skilmálum af þeirra hálfu.

Nýverið komst ég að raun um að ofan á allt annað rekur Síminn langdýrustu vídeóleigu landsins. 940 kr. eru eflaust hæsta gjald sem nokkur vídeóleiga í heimi tekur fyrir gamla bíómynd. [...] Hvað græddi Síminn á þessu? Jú, við á þessu heimili munum aldrei framar leigja mynd af þessari okurbúllu.

Ég er í Nova símaáskrift og var að greiða reikning með gjalddaga 2/10, 900 kr. Á hann eru kominir dr-vextir 6 kr. sem er í lagi þar sem ég greiði ekki á gjalddaga. En svo kemur rúsinan í pylsuendanum: ofan á þetta leggjast 500 kr vanskilagjald. Ég greiði 60% af upphæð reiknings i vanskilagjald. Það er nokkuð mikið að greiða fyrst vexti og svo okurvexti sem þetta er svo sannarlega.

Það sem kom mér þó á óvart var að Vodafone er byrjað að rukka í mínútum, sem þýðir það að ef ég hringi í 10 sekúndur (sem er ótrúlega algengt hjá mér) þá borga ég fyrir heila mínútu. Þetta útskýrir af hverju mér hefur fundist símareikningurinn ótrúlega hár undanfarið. [...] Þess vegna er ég nú að leita að nýju símfyrirtæki til að eiga viðskipti við.

Okursíðu dr.Gunna má finna hér.

 *Hver færsla var talin en henni sleppt ef athugasemdir þjónustuaðila gáfu tilefni til eða þegar engin rök voru til færð sem ástæða kvörtunar. Ummælum við færslur var sleppt jafnvel þó þar komi yfirleitt fram mun fleiri dæmi enda velflest nafnlaus.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar