Þriðjudagur - 1.12 2009 - 10:56 - Ummæli ()

Úttekt: N1 fær versta útreið olíufélaganna íslensku á okursíðu dr. Gunna

bilde.jpgEngum vafa er undirorpið hvaða íslenska olíufélag þykir bjóða hvað lakasta þjónustu og hæstu verðin sé tekið mið af færslum á hinni vinsælu okursíðu dr.Gunna en sá vefur hefur nú verið starfræktur um rúmlega tveggja ára skeið. Olíufélagið N1 er í algjörum sérflokki hvað fjölda kvartana þar varðar. Svo mjög reyndar að hin tvö rótgrónu olíufélögin í landinu samanlagt ná ekki upp í þann fjölda sem er óánægður með þjónustu og verð hjá olíufélaginu N1.

Eyjan hefur tekið saman og greint allar færslur neytenda á hinni þekktu okursíðu dr. Gunna en sú hefur verið starfrækt um rúmlega tveggja ára skeið. Er lítið lát á fjölda þeirra er þar tjá sig enda skiptir nú heildarfjöldi færslna þar þúsundum. Má enda svo heita að sá vefur sé í raun eini vettvangur neytenda í landinu að frátöldum Neytendasamtökunum sjálfum og Talsmanni neytenda. Mun Eyjan nú og á næstu dögum birta niðurstöðurnar í hinum ýmsu þjónustu- og verslunargeirum.

Alls er að finna 56 aðfinnslur við þjónustu eða verðlag hjá N1 meðal notenda okursíðunnar. Eru þar samantaldar allar færslur um fyrirtækið en N1 rekur sem kunnugt er smur- og dekkjaverkstæði, varahlutaverslun og margt fleira. Það er því stærsta fyrirtækið í hópnum og það mögulega útskýrir þann mikla mun sem á N1 er og næstu olíufélögum á eftir.´

Það er Olís sem næstflest neikvæð ummæli fær eða 23 í heildina og olíufélagið Skeljungur er þar skrefinu á eftir með 22 færslur. Þrír einstaklingar kvarta yfir Atlantsolíu en önnur olíufélög komast ekki á blað þeirra neytenda sem tjá sig á okursíðunni.

 Nokkur handahófskennd dæmi má finna hér að neðan.

Örg út í sjálfa mig ók ég heimleiðis og ákvað að koma við á N1 til að fullvissa mig um að þjónustan hefði ekki verið ranglega gjaldfærð og ég óvart látin borga of mikið. Ég hitti fyrir sama aðila sem afgreiddi mig daginn áður og hann staðfesti að ég hefði borgað rétt fyrir jafnvægisstillinguna, 5.890 krónur og það var með 654 króna afslætti. Þá stóðst ég ekki mátið að segja honum að Nesdekk tæki 2.500 krónur fyrir sömu þjónustu.

Keypti karamellutopp frá Kjörís í N1 í Hveragerði. Kostaði 419 krónur en 298 krónur hjá Shell í Hveragerði. Flutningskostnaðurinn?

Ég fór úti Olis Álfheimum áðan til að skila 5kg plast gashylki, sem ég keypti um daginn á tæpar kr 9000.- en þau vildu kaupa af mér á ca kr. 2500.- eða kr. 6500.- minna en ég borgaði fyrir það fyrir nokkrum dögum síðan.

En þeir eru ekki allir þar sem þeir eru séðir hjá ÓB því að á sama plani eru fleiri dælur og ef maður er rosalega vakandi þá ætti maður að fatta að þar er Olís á ferð. Hjá þeim er hærra verð en hjá ÓB og maður getur jú fengið þjónustu og greitt inni en hvergi merkja þeir lítraverðið heldur vakir ÓB merkið fyrir utan planið þeirra af því að það er jú ein ÓB-dæla inn á planinu. Ég gekk í þessa gildru og las lítraverðið á ÓB skiltinu renndi inn á planið og dældi á bílinn.Svo verður mér litið á lítraverðið á dælunni og sé að það er allt annað en á stóra ljósaskiltinu og hef orð á þessu þegar ég fer inn til að borga og konan segir, hin rólegasta, nei það er verðið hjá ÓB. Bíddu er þetta ekki ÓB? Nei, nei þetta er Olís.

Okursíðu dr.Gunna má finna hér.

*Hver færsla var talin en henni sleppt ef athugasemdir þjónustuaðila gáfu tilefni til eða þegar engin rök voru til færð sem ástæða kvörtunar. Ummælum við færslur var sleppt jafnvel þó þar komi yfirleitt fram mun fleiri dæmi enda velflest nafnlaus.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar