Alfred Toepfer stofnunin í Hamborg hefur tilkynnt að Andri Snær Magnason fá Kairos verðlaunin árið 2010, sem eru talin ein merkustu menningarverðlaun Evrópu.
Verðlaunaafhendingin fer fram í Hamborg þann 28. febrúar á næsta ári. Verðlaunaféð er 75.000 evrur eða rúmar 13 milljónir íslenskra króna á núverandi gengi, að því er kemur fram í tilkynningu Forlagsins, útgefanda Andra Snæs.
Toepfer stofnunin hefur um langt skeið veitt verðlaun á sviði menningar og lista í Evrópu en áður hafa listamenn eins og Harold Pinter, Pina Bausch, Imre Kertesz, David Hockney og Ólafur Elíasson verið meðal þeirra sem hafa hlotið verðlaun frá stofnuninni.
Kairos verðlaunin eru veitt einu sinni á ári og ætluð listamönnum á sviði myndlistar, tónlistar, arkitektúrs, kvikmyndagerðar, ljósmyndunar, ritlistar eða blaðamennsku. Verðlaunin eru nefnd eftir gríska guðinum KAIROS sem var guð hinnar „réttu stundar“ og eru hugsuð sem viðurkenning fyrir framúrskarandi störf en þó ekki ævistarf – heldur eru þau hugsuð sem hvatning og stuðningur til frekari verka.
Andri Snær hefur vakið athygli fyrir óvenju fjölbreyttan feril, frá ljóðlist, leikritun og skáldskap til verka sem taka á samfélagslegum málefnum og náttúruvernd. Dómnefndin byggði val sitt meðal annars á því að Andri Snær – sem höfundur stillir sér ekki upp sem hlutlaus áhorfandi heldur sem beinn þáttakandi í samfélaginu. Í fréttatilkynningu Alfred Toepfer stofnunarinnar segir meðal annars að: „með húmor og sannfæringarkrafti ljái hann kraftmikilli grasrótarhreyfingu á Íslandi rödd sína og sköpunarhæfileika“.
Nánar um Kairos verðlaunin og umsögn dómnefndar á www.toepfer-fvs.de.
215
97