Þingmenn Hreyfingarinnar kvarta yfir rangfærslu í greinargerð með nýju frumvarpi forsætisnefndar um sérstaka nefnd sem á að fjalla um niðurstöður rannsóknarnefndarinnar Alþingis um hrunið.
Í greinagerðinni segir m.a. að samkomulag hafi orðið milli formanna þingflokkanna og forsætisnefndar um fyrirkomulagið á meðferð Alþingis á skýrslu rannsóknarnefndarinnar.
Þingmenn Hreyfingarinnar kannast ekki við aðild sína að tilgreindu samkomulagi og segja að þingflokksformaður þeirra Birgitta Jónsdóttir hafi reyndar óskað eftir því að andstaða hennar við frumvarpið til yrði færð til bókar á fundi með forseta þingsins og þingflokksformönnum s.l. mánudag.
Þingmenn Hreyfingarinnar segja í bréfi sínu til forseta Alþingis, Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, að þeir hafi gert ítrekað alvarlegar athugasemdir við frumvarpið á meðan það var í vinnslu og lögðu til þrjár breytingar við það:
1. Þingmenn Hreyfingarinnar lögðu til að þingmannanefndin yrði skipuð fimm þingmönnum í stað níu, einum úr hverjum flokki. Eins yrði sett það skilyrði að nefndarmaður hefði ekki átt sæti á Alþingi fyrir október 2008 og hefði óumdeilanlega engin tengsl við þá atburði eða gerendur þeirra atburða sem getið er í fyrirsögn frumvarpsins.
2. Þingmenn Hreyfingarinnar lögðu auk þess til að skipuð yrði nefnd fimm valinkunnra manna utan þingsins sem hefði það hlutverk að fjalla um þá þætti skýrslunnar sem snerta alþingismenn og ráðherra, núverandi og/eða fyrrverandi, og fjölskyldur þeirra. Það yrði einnig hlutverk þeirrar nefndar að fjalla um öll atriði sem hugsanlega kæmu fram í skýrslunni og snerta Alþingi sjálft sem stofnun.
3. Þingmenn Hreyfingarinnar lögðu til að gögn málsins yrðu færð á Þjóðskjalasafn Íslands og þau gerð opinber, eins og hægt er.
Þingmenn Hreyfingarinnar segjast leggja áherslu á að höfð sé í huga sú umræða sem átt hefur sér stað í þjóðfélaginu varðandi hvaða aðilar það eru sem höfuðábyrgð bera á því ástandi sem nú ríkir á Íslandi.
Þá segja þingmennirnir í erindi sínu til forseta Alþingis:
„Það var mat þinghóps Hreyfingarinnar að hætt væri við að tengsl og hagsmunaáreskstrar myndu gera trúverðugleika nefndarinnar að engu. Því væri það grundvallaratriði til að mark verði takandi á störfum nefndarinnar að þingmenn ákvarði ekki það verklag er varðar aðra þingmenn sem og ráðherra í þeirri vinnu sem framundan er.
Með skipun nefndar fimm valinkunnra manna utan þings sem hefði það hlutverk sem fram kom í breytingartillögum Hreyfingarinnar yrði auk þess tryggt að Alþingi yrði ekki sett í þá stöðu að veita sjálfu sér aðhald heldur fengi stofnunin sjálf og hlutaðeigandi aðilar nauðsynlegt utanaðkomandi aðhald.
Þeir atburðir sem hér hafa átt sér stað eru þess eðlis að nauðsynlegt er að tryggja að þeir geti ekki endurtekið sig. Því er mikilvægt að aðgangur að þeim gögnum sem til verða við vinnu rannsóknarnefndarinnar sé eins opinn og frekast sé kostur svo hægt verði að rannsaka málið til fullnustu og læra af mistökum fortíðarinnar.“
Þingmennirnir segja hætt við að rannsóknarskýrslan fái ekki viðeigandi meðferð sem kunni að hafa þær afleiðingar í för með sér að þeir aðilar sem ábyrgð bera í því máli sem hér er til umfjöllunar verði ekki látnir axla þá ábyrgð. Að auki séu engin tímamörk sett á vinnu þingmannanefndarinnar og því hætt við að störf
hennar dragist óæskilega.
Umrædd þingmannanefnd mun ein koma til með að hafa ákvörðunarvald um hvort landsdómur verður kallaður saman vegna mála sem Alþingi kann að höfða gegn ráðherrum út af embættisrekstri þeirra.
