Miðvikudagur - 2.12 2009 - 10:45 - Ummæli ()

Úttekt: Ekki þykir öllum Íslendingum skemmtilegast að versla í Hagkaup

bud.jpgHvort sem það endurspeglar almennt andann í íslensku þjóðfélagi undanfarna mánuði eður ei þá er það verslunin Hagkaup sem fær langflest atkvæði neytenda sem okurverslun þegar teknar eru saman kvartanir almennings á okursíðu dr. Gunna. Reyndar fær ekkert annað íslenskt fyrirtæki jafn slæma umfjöllun á þeim vef af þeim hundruðum fyrirtækja sem þar eru nefnd til sögunnar. Lágverðsverslanirnar Bónus og Krónan fá reyndar næstum jafn margar kvartanir og Hagkaup.

Eyjan hefur tekið saman og greint allar færslur neytenda á hinni þekktu okursíðu dr. Gunna en sú hefur verið starfrækt um rúmlega tveggja ára skeið. Er lítið lát á fjölda þeirra er þar tjá sig enda skiptir nú heildarfjöldi færslna þar þúsundum. Má enda svo heita að sá vefur sé í raun eini vettvangur neytenda í landinu að frátöldum Neytendasamtökunum sjálfum og Talsmanni neytenda. Mun Eyjan nú og á næstu dögum birta niðurstöðurnar í hinum ýmsu þjónustu- og verslunargeirum.

Einir 115 einstaklingar kvarta yfir því sem þeir flokka sem okur í verslun Hagkaupa en fær ekkert fyrirtæki eins slæma útreið og Hagkaup þegar allt er talið. Meginþorri kvartana neytenda hefur með háa verðlagningu að gera en allnokkrir fárást einnig yfir þeim mikla verðmun sem fyrirfinnst á sömu vörum hjá Hagkaup og í Bónus.

Lágverðsverslun Krónunnar er næsta á blaði en 112 neytendur töldu ástæðu til að tjá sig um þá verslun á okursíðunni. Ólíkt Hagkaup er meirihluti kvartana yfir Krónunni þó vegna rangra verðmerkinga en aðeins er skammt síðan Neytendastofa birti fréttir þess efnis að verðmerkingum væri mjög ábótavant hjá mörgum verslunum.

Sama gildir um Bónus sem fær 103 kvartanir á okursíðu dr. Gunna. Verðmerkingar reynast rangar en flestir uppgötva það ekki fyrr en löngu síðar. Getur þar munað töluverðum upphæðum eins og dæmin sýna á okursíðunni.

Ekki kemur á óvart að verslanir 10/11 fá sinn skerf af ummælum.  61 neytandi tjáir sig um þá verslunarkeðju og er þar undantekningarlítið ekki verið að kvarta yfir vitlausum merkingum heldur beinu okri eins og þar stendur.

Nóatún er svo í fimmta sætinu en 44 kvarta yfir verðum og gæðum í þeim verslunum. 23 kvarta yfir verslunum Samkaupa og 16 vilja meina að ekki sé allt með felldu í verslunum Europris.

Nokkur handahófskennd dæmi má finna hér að neðan.

Reynsla minnar fjölskyldu hvað varðar slæma þjónustu setur Nóatúnsverslunina í Hamraborginni í algjöra sérstöðu hvað varðar framkomu við neytendur. Í fyrst lagi þá heyrir það til undantekninga að þær vörur sem eru á tilboðsverði séu með rétt afsláttarverði þegar komið er á kassa. Í öðru lagi þá úir og grúir af útrunnum vörum í versluninni sem verið er að selja sem nýja. Nákvæmlega sama vandamálið og Nóatún í Smáralindinni átti við að stríða ef einhver skyldi muna eftir því.

Mér blöskraði þegar ég sá verðmuninn að ég er enn í sjokki. Sama öndin kostaði 3.998 kr. í Nóatúni og 8.998 í Hagkaupum!!!!!!!!!!!!!!!

Ég fór í Hagkaup um daginn og sonur minn var fljótlega kominn í Lego-deildina. Þar sá ég að Star Wars Lego pakki sem ég hafði keypt í Toys ‘r us um miðjan september á 13.999 kostaði um miðjan nóvember í Hagkaup 19.999 kr. Hvað ætli hann kosti í Toys ‘r us í dag? Svo var þarna líka Legokastali sem kostaði 7000 kr síðustu jól sem sonurinn fékk í jólagjöf kominn á 12.690 kr.

Til „gamans“ vil ég benda á að það var þann 26. nóvember sem ég borgaði þessar 1249kr fyrir malt & appelsínkassann EN daginn eftir er heilsíðuauglýsing í Fréttablaðinu frá Krónunni, tilboðsvörur helgarinnar………… þar er þessi sami kassi auglýstur á TILBOÐI á 1299kr. Sem sagt varan fer á tilboð og hækkar þá um 50 kr?!!!!!!!!!!

Barnamatur hefur hækkað óeðlilega mikið í Bónus. T.d. í mars kostaði Gerber sveskjumaukskrukka 33 kr í Bónus, í dag kostar sama litla krukkan 69 kr. Sem sagt hækkun um 109% á 5 mánuðum. Einhver hækkun er sennilega eðlileg í ljósi breytinga á gengi o.fl. en 109% hlýtur að vera óeðlilegt.

Okursíðu dr.Gunna má finna hér.

*Hver færsla var talin en henni sleppt ef athugasemdir þjónustuaðila gáfu tilefni til eða þegar engin rök voru til færð sem ástæða kvörtunar. Ummælum við færslur var sleppt jafnvel þó þar komi yfirleitt fram mun fleiri dæmi enda velflest nafnlaus.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar