Lyfjafyrirtækið Lyfja stendur sig verst allra slíkra fyrirtækja á Íslandi sé mið tekið af umkvörtunum neytenda á okursíðum dr. Gunna. Fær Lyfja reyndar harða samkeppni frá hinu stóra lyfjafyrirtækinu Lyf og heilsu. Önnur lyfjafyrirtæki eða apótek komast varla á blað en hafa ber í huga að þessi tvö hafa verið langstærst á markaðnum á Íslandi.
Eyjan hefur tekið saman og greint allar færslur neytenda á hinni þekktu okursíðu dr. Gunna en sú hefur verið starfrækt um rúmlega tveggja ára skeið. Er lítið lát á fjölda þeirra er þar tjá sig enda skiptir nú heildarfjöldi færslna þar þúsundum. Má enda svo heita að sá vefur sé í raun eini vettvangur neytenda í landinu að frátöldum Neytendasamtökunum sjálfum og Talsmanni neytenda. Mun Eyjan nú og á næstu dögum birta niðurstöðurnar í hinum ýmsu þjónustu- og verslunargeirum.
Ekki færri en 41 einstaklingur sér ástæðu til að tjá sig um Lyfju. Þykir verðstefna fyrirtækisins ekki til eftirbreytni að mati gagnrýnenda en ólíkt færslum neytenda í öðrum geirum atvinnulífsins eru nánast allar kvartanir yfir lyfjafyrirtækjunum vegna þess sem flokkast undir okur í huga þeirra sem tjá sig.
Fyrirtækið Lyf og heilsa er reyndar lítill eftirbátur Lyfju hvað kvartanir um okurverð varðar. Fær það fyrirtæki 38 kvartanir alls og aftur er stærstur hluti neytenda að kvarta yfir verðum í hærri kantinum.
Athygli vekur að þrátt fyrir töluverðan fjölda lyfjafyrirtækja og apóteka komast aðeins tvö önnur slík fyrirtæki á blað. Eru það Lyfjaver og Lyfjaval sem fá þrjú atkvæði hvort um sig fyrir okur eða slaka þjónustu.
Nokkur handahófskennd dæmi má finna hér að neðan.
Vissulega er ekki mikið magn notað í einu en verð á 4 ml í Lyfju Smáratorgi er á kr. 2,876.- Oft er það hagur að selja hluti í litlum einingum til að auka framlegð, ennfremur sem lyf geta runnið út fljótlega eftir opnun, en umreiknað kostar 1 líter af þessum augndropum kr. 719,000.-
Álpaðist til að versla af ykkur (lyf og heilsa) firði í hádeginu í gær 05.05.09 um kl 12:20 . Astma lyf 3 stl ventolin, 3 stk seretide 50/500 og 3 stk flixonase – kostnaður uppá 12.585 kr. Eftir verðkönnunn kom í ljós að ég hefði einungis þurft að greiða 6.418. – kr fyrir sömu lyf. hjá Lyfjaveri. Finnst ykkur þetta vera í lagi ?
Ég get því keypt nærri 4 skammta þar sem hægt er að versla hagkvæmast á móti 1 skammti í Lyfjum og heilsu. Veitir ekki fólki af hverri krónu þessa dagana, sérstaklega þeim, sem þurfa á lyfjum að halda? Ég vildi vekja athygli á þessum hrikalega verðmun, til að fleiri en við geti nýtt krónurnar sínar betur.
Pakkinn af Nicotinell nikótíntyggigúmmí, 2 mg. mint, 204 stk., kostar kr. 7.280 í Lyfju, Staðarbergi, Hafnarfirði (kannað 10. desember 2008, kl. 18:30). Daginn eftir keypti ég sama skammt (Nicotinell 2 mg. mint, 204 stk.) í Lyfjaveri, Suðurlandsbraut, Reykjavík. Pakkinn kostaði þar kr. 4.682!! Mismunur á Lyfju og Lyfjaveri: kr. 2.598, Lyfjaveri í hag.
Mér er það gersamlega óskiljanlegt að nokkrum manni skuli detta í hug að versla við Lyfju.
Okursíðu dr.Gunna má finna hér.
*Hver færsla var talin en henni sleppt ef athugasemdir þjónustuaðila gáfu tilefni til eða þegar engin rök voru til færð sem ástæða kvörtunar. Ummælum við færslur var sleppt jafnvel þó þar komi yfirleitt fram mun fleiri dæmi enda velflest nafnlaus.
