Föstudagur - 4.12 2009 - 11:56 - Ummæli ()

Úttekt: Eymundsson með verstu útkomu bókaverslana á okursíðu dr. Gunna

mal-og-menning-reykjavik-bookstore.jpgBókaverslun Eymundssonar, eða Penninn Eymundsson eins og fyrirtækið hét áður, þykir okra hvað mest á viðskiptavinum sínum þegar teknar eru saman bóksölur og ritfangaverslanir á okursíðum dr. Gunna. Er Eymundsson nokkuð í sérflokki hvað fjölda færsla viðkemur en næstverst þykir Office1 standa sig

Eyjan hefur tekið saman og greint allar færslur neytenda á hinni þekktu okursíðu dr. Gunna en sú hefur verið starfrækt um rúmlega tveggja ára skeið. Er lítið lát á fjölda þeirra er þar tjá sig enda skiptir nú heildarfjöldi færslna þar þúsundum. Má enda svo heita að sá vefur sé í raun eini vettvangur neytenda í landinu að frátöldum Neytendasamtökunum sjálfum og Talsmanni neytenda. Mun Eyjan nú og á næstu dögum birta niðurstöðurnar í hinum ýmsu þjónustu- og verslunargeirum.

Niðurstöðurnar eru áberandi Eymundsson í óhag. 30 neytendur kvarta yfir háum verðum og skorti á þjónustu hjá því fyrirtæki á síðustu  tveimur árum. Helgast það efalítið að einhverju leyti af þeirri staðreynd að verslunin var og er meðal þeirra stærstu í bransanum.

Verslanir Office1 fá næstversta útreiðina en 15 einstaklingar taka upp penna til að kvarta yfir þeim og Mál & Menning fá mínus í bókum tíu neytenda sem tjá sig á okursíðunum. 

Aðrar bóka- og ritfangaverslanir fá mun færri kvartanir en þessar þrjár. Fjórir finna sig knúna til að tiltaka okur hjá Bóksölu stúdenta, þrír hjá Griffli og tveir hjá Iðu og A4. 

Nokkur handahófskennd dæmi má finna hér að neðan.

Keypti líka pakka með 5 stílabókum (með gormum) á um það bil 890 krónur í Griffli, og þurfti svo að fara í Eymundsson að kaupa bók sem ekki var til í Griffli. Sá þar ALVEG eins stílabækur, nema bara ekki í pakka. EIN STÍLABÓK MEÐ GORMUM Á RÚMAR 480 KRÓNUR!

Fór í Eymundsson í Kringlunni í gær og þar kostar hún 14.990kr,  ég hinsvegar fór í bóksölu stútenta í dag sunnudag og keypti hana þar á 8491kr. Já þetta er alveg sama bókin, í einu bindi og eftir Mörð Árnason. Verðmunur uppá 6499krónur hvorki meira né minna.

Fór í vikunni í ritfangaverslun Eymundsson í Reykjanesbæ til að kaupa svo lítið sem strokleður og blý fyrir strákinn minn í skólann. Fyrir eitt lítið Boxy- strokleður þurfti ég að borga heilar 265 krónur! Fyrir tvö strokleður þurfti ég sumsé að borga 530 krónur! Já, tvö strokleður! Fyrir pakkninguna af HB 0,7 blýi þurfti ég að greiða svo mikið sem 575 krónur. Í pakkningunni eru 40 blý. Ég greiddi 1,105 krónur fyrir þetta smáræði! Þetta er ekkert annað en klikkun.

Við hjónin fórum í gær í Mál og menningu á Laugavegi til að kaupa afmælisgjöf. Fundum góða bók á þokkalegu verði og vantaði svo kort til að fylgja með. Konan mín fann einfalt kort en sá ekki verðin í standinum. Á meðan verið var að pakka gjöfinni, skrifaði hún í kortið og ég borgaði. Ég hrökk aðeins við þegar konan á kassanum gaf upp verðið. Bókin kostaði 3.990 kr. sem ég vissi, en kortið var á 795 kr!! Hvaða álagning skyldi vera á því? 500% eða hvað? Þetta er óþolandi græðgi

Okursíðu dr.Gunna má finna hér.

*Hver færsla var talin en henni sleppt ef athugasemdir þjónustuaðila gáfu tilefni til eða þegar engin rök voru til færð sem ástæða kvörtunar. Ummælum við færslur var sleppt jafnvel þó þar komi yfirleitt fram mun fleiri dæmi enda velflest nafnlaus.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar