Leikdómur um Maríuhænuna í Þjóðleikhúsinu: Gleði í ró
Maríuhænan, dansleikurinn án orða, er ætlaður börnum frá núll til fjögurra ára segir í kynningu Þjóðleikhússins. Ekki er mér alveg ljóst hvenær við mannsbörnin erum núll ára, en á bekknum aftan við mig stóð um það bil árs gamalt barn í faðmi móður sinnar og verkið var bókstaflega sniðið fyrir það. Allan tímann mátti heyra kliðandi gleði og skríkjur þessa ómálga barns yfir mjúkri tónlistinni, glettnum dansi ljósálfs og svifaseinnar maríuhænu; leik ljóskastarana með liti regnbogans: Gulan, rauðan, grænan og bláan. Sá á fimmta ári sem var í fylgd með mér, hreyfst með leyndardómum upphafsins, fimleikum ljósálfsins en mjög fljótlega hætti hann að fylgjast með ævintýrinu í skóginum og vildi vita hvort sól eða tungl væru á lofti. Af hverju hlutirnir væru gerðir svona en ekki hinsegin? Hvers vegna maríuhænan gengi á afturlöppunum?
Kóreógrafinn Inger Cecilie Bertràn de Lis skapar hér ákaflega notalega stund fyrir foreldra og allra yngstu börn;hreyfingar Sylvi Fredriksen og Tinnu Grétarsdóttur eru nokkuð endurtekningarsamar en skondnar og skemmtilega útfærðar í takti sem af einbeitingu og hlustun yngstu barnanna að dæma hæfði þeim vel. Væri sýningin íslensk segði ég óhikað að í leiknum með liti og ljós kenndi sterkra áhrifa frá mætti og notkun litanna í barnabrúðuleikhúsi Messíönu Tómasdóttur. Og alveg frá upphafi er börnin ganga inn og mæta álfinum og maríuhænunni þar til þau í lokin fá litlar litaslæður til að sveifla með tónlist er kannski fátt nýstárlegt sem mætir auga fullorðins íslensks áhorfanda.
Það hefði hins vegar verið hægt að mæla með því að foreldrar og börn (ekki eldri en fjögurra ára) leituðu til Maríuhænunnar á aðventu því þar skapaðist sannarlega gleði í ró. En þar sem gagnrýnendum var boðið á eina af síðustu sýningum þessa norska gestaleiks, þarsem reyndar var ekki þétt setinn bekkurinn,verður það varla gert úr þessu.
Vert er samt að spyrja að lokum af hverju norskur titill verksins Å, Marja, fly, fly var þýddur á svona jarðbundinn hátt?
María Kristjánsdóttir
Maríuhænan, norskur gestaleikur í Kúlunni, Þjóðleikhúsinu, laugardaginn, 5.maí 2009, kl.13.30. Hugmynd, leikmynd og hreyfingar: Inger Cecilie Bertran de Lis. Tónskáld: Karoline Rising Næss. Búningar: Hilde Elisabeth Brunstad. Lýsing:Elisabeth Kjeldahl Nilsson. Dansarar: Sylvi Frederiksen og Tinna Grétarsdóttir.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
