Sunnudagur - 6.12 2009 - 13:18 - Ummæli ()

Lokaúttekt á okursíðu dr. Gunna. Matvöruverslanirnar skjóta öðrum ref fyrir rass

matvara1.jpgEyjan hefur undanfarna daga birt niðurstöður greiningar á þeim þúsundum færslna sem birtar hafa verið á hinum vinsæla okurvef dr.Gunna. Hefur birting þessa efnis vakið athygli þó sitt sýnist hverjum um gildi upplýsinganna enda vefurinn opinn öllum til athugasemda.

Það er þó óumdeilt að umræddur vefur er einn af sárafáum stöðum þar sem neytendur hérlendis geta komið á framfæri upplýsingum sem þeim finnst skipta máli. Óumdeilt er einnig að neytendamál almennt á Íslandi hafa lengi verið í lamasessi og um það hafa margir tjáð sig í ræðum og riti, hvort sem er Alþýðusamband Íslands eða Talsmaður neytenda. Þá liggur ennfremur fyrir að þúsundir Íslendinga hafa tjáð skoðanir sínar á vef dr.Gunna og meirihluti allra færslna eru merktar með nafni.

Eyjan birtir hér lokaúttektina og að þessu sinni lista yfir þau þrjú fyrirtæki í hinum ýmsu greinum sem hvað flestir tjá sig um á umræddum okursíðum. Áberandi óvinsælustu fyrirtækin á vef dr. Gunnar eru matvöruverslanirnar Hagkaup, Krónan og Bónus en engum á að koma á óvart að óvinsælustu fyrirtækin í öllum flokkum eru einnig meðal þeirra stærstu á Íslandi og því kannski fátt óeðlilegt við þá stöðu.

Listinn í heild sinni:

Bóka- og ritfangaverslanir:

Penninn/Eymundsson (30)

Office 1 (15)

Mál & Menning (10)

Söluturnar:

Bónusvídeó (10)

Aktu Taktu (9)

Snæland Vídeó (8)

Ferðaskrifstofur:

Heimsferðir (4)

Úrval Útsýn (3)

Norræna (2)

Verkstæði:

Bíla Áttan (6)

Max 1 (6)

Stilling (4)

Líkamsrækt:

World Class (5)

Hreyfing (5)

Sporthúsið (3)

Kvikmyndahús:

Sambíóin (19)

Háskólabíó (5)

Önnur (3)

Tískuvöruverslanir:

Debenhams (9)

Zara (8)

Ólavía og Óliver (6)

Bakarí:

Bakarameistarinn (18)

Jói Fel (9)

Bakaríið við brúnna (9)

Tölvuvörur:

Elko (40)

BT (29)

Apple búðin (20)

Matvöruverslanir:

Hagkaup (115)

Krónan (112)

Bónus (103)

Stórverslanir:

Húsasmiðjan/Blómaval (56)

Byko (44)

IKEA (21)

Bankar:

Glitnir (15)

Arion banki (15)

Landsbankinn (12)

Olíufélög:

N1 (56)

Olís (23)

Skeljungur (22)

Fjarskiptafyrirtæki:

Síminn (44)

Tal (19)

Vodafone (17)

Flugfélög:

Icelandair (47)

Iceland Express (18)

Flugfélag Íslands (4)

Bílaumboð:

Hekla (17)

Toyota (12)

Ingvar Helgason (9)

Kaffihús:

Te & Kaffi (11)

Súfistinn (7)

Maður lifandi (4)

Lyfjafyrirtæki:

Lyfja (41)

Lyf og heilsa (38)

Lyfjaver (3)

Útilífsverslanir:

Intersport (18)

Útilíf (15)

Ellingsen (4)

Öryggisfyrirtæki:

Securitas (12)

Öryggismiðstöð Íslands (2)

Veitingar:

Pizza Hut (13)

KFC (11)

Dominos (9)

Aðrir:

Toys ´R Us (25)

Fríhöfnin (21)

Íslandspóstur (17)


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar