Fimmtudagur 10.12.2009 - 09:27 - Ummæli ( )
Ný könnun: Afdráttarlaus andstaða við Icesave. 70% vilja að forseti synji lögunum
Um 70% svarenda í nýrri skoðanakönnun MMR vilja að forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, synji væntanlegum Icesave-lögum staðfestingar og vísi þeim þannig til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Könnunin var gerð fyrir Viðskiptablaðið.
Samkvæmt könnuninni telja rúm 61% svarenda að breytingarnar, sem gerðar voru á fyrirvörunum við ríkisábyrgð á Icesave-samningunum, hafi verið til hins verra fyrir Ísland.
Á vef Indefence-samtakanna má sjá að rúmlega 35 þúsund manns hafa undirritað áskorun á forsetann um að synja Icesave staðfestingar. Það eru mun fleiri en skoruðu á forsetann að hafna fjölmiðlalögunum árið 2004.
Ummæli ( )
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
