Skuldastaða Orkuveitu Reykjavíkur veldur Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra miklum áhyggjum en sérstök áhættugreining fer nú fram á fyrirtækinu til að fá skýra mynd af stöðu mála og hvernig hún snýr að borginni og öðrum eigendur.
Þá réttlætir hún að OR greiði hærra afgjald eins og krafist hefur verið með þeim rökum að fyrirtæki í opinberri eigu eigi að skila eigendum og samfélaginu arði.
Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu.
Er þar rætt við Hönnu Birnu um hin ýmsu málefni er að borginni og rekstri hennar snúa. Málefni Orkuveitunnar þar fyrirferðamikil en þrátt fyrir slæma stöðu OR og slæmt rekstrarumhverfi er farið fram á að aðgjaldsgreiðslur hækki.
Segir borgarstjóri það vera eðlilegt. „Ég sem borgarstjóri get ekki gefið afslátt af því eða þeim hagsmunum borgarbúa. En í ljósi þeirra aðstæðna sem nú eru uppi hefur Orkuveitan óskað eftir því að fá frest til að greiða fullt gjald. Við tökum mið af því og við þurfum að gæta þess að sýna því skilning, það er það sem við munum gera og þeim verður veittur sá frestur. En ég er þeirrar skoðunar að þegar þú ert með stórt fyrirtæki eins og Orkuveituna, sem nýtur þess að vera í opinberri eigu, þá eigi Reykvíkingar rétt á ákveðnu fjármagni frá fyrirtækinu.“
Telur Hanna Birna þó að framtíð OR sé traust og góð en vill ekki játa eða neita því hvort til greina komi að takmarka umsvif fyrirtækisins. „Umfang OR er til stöðugrar skoðunar.“
