„Ég verð að viðurkenna að ég var orðinn nokkuð vantrúa á tímabili að þetta yrði að veruleika en hugmyndin lifir og þetta er ekki útaf borðinu endanlega,“ segir Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri Vesturbyggðar, í samtali við Eyjuna. Á hann þar við olíuhreinsistöð sem hugmyndir hafa verið uppi um að koma á fót í sveitarfélaginu en rússneskir og bandarískir aðilar sem sýnt hafa verkefninu áhuga um hríð hafa dregið sig að mestu til baka.
Ólafur Egilsson, lögmaður og forstjóri Íslensks hátækniiðnaðar sem verið hefur í forsvari fyrir verkefninu fyrir hönd erlendra fjárfesta, segir verkefnið í hægagangi en ítrekar að ekki sé hægt að segja að hugmyndin sé dauð og grafin. Stórir aðilar á borð við rússnesku fyrirtækin Gazprom og Lukoil auk Shell og Exxon Mobil voru í hópi þeirra sem verkefninu sýndu áhuga áður en til efnahagshruns kom fyrir rúmu ári.
Þó komið hafi afturkippur í verkefnið hefur ekkert breyst hvað forsendur þess varðar. Vísar Ólafur til þess að enn sé eftirspurn mikil á heimsvísu eftir olíu og langur vegur í að það breytist. Þá sé ljóst að Ísland verði alltaf besti kostur til vinnslu olíu á mjög stóru svæði langt norður í hafi. „Fyrstu hugmyndir hafa beinst að vinnslu jarðolíu sem finnst úti fyrir Norður-Rússlandi og ætluð er fyrir Bandaríkjamarkað. Möguleikar liggja einnig í því mikla magni jarðolíu sem fullvíst þykir að fást muni úr hafsbotni Norðurskautssvæðisins í framtíðinni. Ekki aðeins er þá verið að líta til Drekasvæðisins heldur sýna rannsóknir meðal annars Jarðfræðistofnunar Bandaríkjanna að mjög miklar olíu- og gaslindir er að finna beggja vegna Grænlands. Hvað allt þetta varðar er Ísland í kjörstöðu. Það yrði mikill styrkur fyrir íslenskt efnahagslíf af slíkri stöð hérlendis en auðvitað þurfa íslensk stjórnvöld í fyllingu tímans að koma að málinu til að greiða götu þess.“
Ragnar bæjarstjóri bendir ennfremur á að áætlanir vegna olíuhreinsistöðvarinnar hafi verið það langt komnar þegar bakslag kom að lítinn tíma þurfi til að koma málinu á koppinn að nýju þegar losna fer um fjármagn til fjárfestinga að nýju. „Þetta er gríðarlegt hagsmunamál fyrir okkur hér fyrir vestan enda reiknast mér til að með sama fólksflótta héðan og verið hefur undanfarna áratugi verða Vestfirðir allir orðnir að Hornströndum eftir ekki svo langan tíma. Enginn verður hér eftir. Stöð sem þessi yrði áberandi lyftistöng fyrir fjórðunginn.“
