Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, telur að þótt Kína og Indland sýni því takmarkaðan áhuga á yfirstandandi Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna að ganga að hertum skilyrðum vegna útblásturs gróðurhúsalofttegunda muni stefnubreyting verða þar á fljótlega. Það sé vegna þess að rannsóknir sýni að jöklar þeir í Himalajafjöllum, þaðan sem allt drykkjarvatn og vatn til raforkuframleiðslu til handa rúmum tveimur milljörðum manna kemur, séu að bráðna.
Þetta sagði Ólafur á opnum fundi við Rannsóknar- og þróunarmiðstöð landbúnaðar í Ohio fylki í Bandaríkjunum en forsetinn er þar staddur til að taka móti heiðursnafnbót við Ohio State háskólann á sunnudaginn kemur.
Sagðist forsetinn þess viss að jöklar Himalaja yrðu að mestu bráðnaðir eftir 20 til 30 ár en slíkt hefði eðli málsins samkvæmt grafalvarleg áhrif á þann þriðjung mannkyns sem býr á þeim slóðum. Sagði forsetinn engan einasta vafa í sínum huga að hlýnun jarðar væri staðreynd sem taka þyrfti mjög alvarlega og benti meðal annars á spár um íslenska jökla sem gera ráð fyrir að þeir hverfi allir á hundrað árum. „Gögnin sem sýna fram á hlýnun jarðar eru svo yfirþyrmandi. Allar þjóðir heims þurfa að grípa til aðgerða.“
Grein Ohio.com um málið.
146
98