Óprúttnir aðilar hafa undanfarna daga reynt að draga úr trúverðugleika Icesave-áskorunarinnar á netinu með því að færa inn á undirskriftalistann nöfn sem eru hreinn tilbúningur. Forsvarsmenn söfnunarinnar hafa fjarlægt þau jafnóðum. Svo virðist sem rekja megi þessa iðju til IP talna í tölvukerfi Stjórnarráðsins, Fréttablaðsins, Ríkisútvarpsins og Hagstofunnar.
Þetta kemur fram í viðtali á fréttavef Morgunblaðsins við Ólaf Elíasson, talsmann samtakanna Indefence, sem standa fyrir áskorun á forseta Íslands að synja væntanlegum Icesave-lögum staðfestingar og koma þeim þannig í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Að sögn Ólafs eru bullundirskriftir reglulega hreinsaðar út af undirskriftalistanum auk þess sem tölvunarfræðingar innan hópsins hafi rakið IP-tölur þeirra tölva þaðan sem slíkar undirskriftir koma sem og lén þeirra.
„Það sem hefur vakið furðu okkar er að stjórnarráðslén kemur upp sem og lén Fréttablaðsins, RÚV og Hagstofu Íslands. Þetta kemur sem sagt út tölvum sem er á þeirra vef,“ er haft eftir Ólafi. Aðspurður segir hann ekki hægt að rekja nákvæmlega úr hvaða ráðuneyti skráningarnar berist, aðeins að þær komi úr stjórnarráðinu.
„Manni dettur helst í hug að þetta sé tilraun til þess að gera söfnunina ótrúverðuga, en það mun ekki takast því það verður svo mikið eftirlit með listanum,“ segir Ólafur og tekur fram að bullundirskriftirnar séu innan við 0,5% þeirra undirskrifta sem safnast hafa.
Nú síðdegis höfðu rúmlega 33 þúsund manns skrifað undir áskorun InDefence hópsins.
Að sögn Ólafs mun óháður aðili fara yfir undirskriftalistann áður en hann verður afhentur forseta Íslands, auk þess sem listinn verður samkeyrður Þjóðskrá.
