Sunnudagur - 3.1 2010 - 17:03 - Ummæli ()

Guardian: Ísland eitt fimm landa sem fóru verst úr kreppunni. Horfur samt jákvæðar

peningar-gjaldeyrir.jpgÍsland er eitt fimm landa sem fór verst í heimskreppunni, að mati breska dagblaðsins The Guardian. Hin löndin fjögur eru Grikkland, Írland, Spánn og Dubai.

Þá metur blaðið að óttastuðull (panic factor) íslenska efnahagslífsins sé 3/5. Ástandið virðist því svartara í Grikklandi, sem hlýtur óttastuðulinn 5/5, og Dubai með 4/5, en Írland og Spánn eru metin á 3/5 einsog Ísland.

Í grein blaðsins er hrun íslenska efnahagslífsins rakið stuttlega og því haldið fram að löng og erfið leið sé framundan hjá Íslendingum áður en þeir ná fyrri styrk, taka muni minnst heila kynslóð til að borga skuldir þjóðarbúsins.

Guardian nefnir að atvinnuleysi hafi rokið á mettíma úr nánast engu og uppí tæp tíu prósent. Engu að síður er bent á jákvæða þætti í uppbyggingunni, svo sem að stýrivextir hafi lækkað eftir að hafa verið á metflugi í langan tíma og að tekist hafi að endurskipuleggja bankakerfið. Í heild séu því bjartari tímar framundan á Íslandi en á horfðist. Meðal annars er því haldið fram að björgunarhringur Íslands geti falist í aðild að Evrópusambandinu, þó það verði mörgum Íslendingum erfiður biti að kyngja.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar