Stjórnarslit verða ef forseti Íslands staðfestir ekki Icesave-lögin. Þetta fullyrðir Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, í samtali við Bloomberg-fréttastofuna í kvöld.
Björn Valur er varaformaður fjárlaganefndar Alþingis og einhver eindregnasti stuðningsmaður Icesave-laganna á Alþingi.
Í viðtalinu segist hann eiga von á því að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra muni hafa samband við Ólaf Ragnar Grímsson forseta í kvöld, sunnudagskvöld, hafi ekkert heyrst í honum varðandi afgreiðslu lagananna. Nauðsynlegt sé að afgreiða málið fyrir opnun markaða á morgun, mánudag.
Árni Sigurjónsson, skrifstofustjóra forsetaembættisins, sagði við Bloomberg að ekkert lægi fyrir um það hvenær forseti mundi kunngjöra ákvörðun sína, en hann mundi skoða málið í dag.
Flestir eiga von á því að til tíðinda dragi í málinu á morgun, mánudag.