Mánudagur - 4.1 2010 - 04:41 - Ummæli ()

Fíkniefnasalar heimsækja sprautufíkla á opna legudeild Landspítala

landspitali.jpgStarfsfólk smitsjúkdómadeildar Landspítalans segir að harka og virðingarleysi á meðal sprautufíkla fyrir eigin heilsu og annarra sé langt umfram það sem áður hefur sést. Yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans segir að einn til fjórir sprautufíklar séu til meðferðar á hverjum einasta degi ársins.Hann segir að margir þeirra boði til sín fíkniefnasala inn á sjúkrahúsið þrátt fyrir að vera lífshættulega veikir.

Fréttablaðið segir frá þessu í dag.

„Það er tilfinning okkar sem sinnum þessum hópi að harkan færist mjög í aukana og yfirleitt meiri óvægni í gangi en hefur verið. Það eru sögur sem ganga á milli fíkniefnaneytendanna sjálfra um að HIV-smitaðir sprautufíklar séu að sprauta aðra og sýni mikla óvarkárni. Auðvitað eru fórnarlömb fíknarinnar meðvituð um hættuna en okkur finnst þetta hafa aukist mjög og að harkan sé að ná nýjum hæðum,“ segir Már við Fréttablaðið. Hann segir að ekki líði sá dagur þar sem ekki séu einn til fjórir sjúklingar á deildinni með vandamál sem tengjast sprautufíkn og í lok ársins hafi fimm ný tilfelli af HIV-sýkingum, sem tengjast sprautufíkn, verið greind.

Eðli málsins samkvæmt fylgja sprautufíklum vandamál á deild sjúkrahúss. Sprautufíklar boða til dæmis ítrekað til sín fíkniefnasala inn á deildina og er dauðsfall á deildinni árið 2007 rakið til slíkrar heimsóknar.

„Vandinn liggur í því að deildin er opin legudeild þar sem háaldrað fólk liggur með tilfallandi veikindi. „Þetta fólk liggur í næsta herbergi við langt leidda sprautufíkla. Þeir eiga ekki í neinum vandræðum með að boða þá sem selja fíkniefni á stefnumót við sig og gera það ítrekað þrátt fyrir hótanir um að þeim verði vísað á dyr. Þetta er ófremdarástand, satt best að segja.“

Már segir jafnframt að sprautufíklum séu hæg heimatökin við neyslu inni á spítalanum. Það fyrsta sem verður að gera til að meðhöndla sýkingu er að setja upp opinn krana vegna lyfjameðferðar. Hann sé hins vegar notaður til neyslu fíkniefnanna.

Um 700 virkir sprautufíklar eru nú á Íslandi að mati sérfræðinga á sjúkrahúsinu Vogi. Á sex árum hefur hlutfall langt leiddra fíkla sem leita aðstoðar á bráðamóttöku LSH aukist um sextíu til áttatíu prósent.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar