eyjan.is

Miðvikudagur 06.01.2010 - 11:19 - Ummæli ()

Könnun MMR: Meirihluti styður ákvörðun Ólafs Ragnars um Icesave

c_documents_and_settings_notandi_my_documents_my_pictures_forsetinn_207068.jpgSamkvæmt glænýrri könnun styðja tæplega 56 prósent aðspurðra þá ákvörðun forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, að vísa Icesave lögunum til fólksins í landinu. Andvígir mælast rúm 44 prósent.

Er þetta nokkuð minni meirihluti en hingað til hefur mælst vegna málsins en fjöldi þeirra sem eru á móti Icesave samkomulagi stjórnvalda hefur verið að mælast allt að 70 prósent síðasta hálfa árið.

Könnun Markaðs- og miðlarannsókna var gerð strax í kjölfar þess að forsetinn ákvað að synja lögunum umræddu. 877 einstaklingar tóku þátt í könnun MMR.

Ennfremur var spurt hvort fólk myndi kjósa með Icesave eða móti væri gengið til atkvæðagreiðslu nú. Svipaður fjöldi, 58 prósent, eru mótfallin Icesave en 42 prósent eru málinu fylgjandi.

Í nýlegri rafrænni Þjóðarkönnun Eyjunnar reyndust rétt tæplega 70 prósent aðspurðra mótfallin Icesave skuldbindingum Íslands og hefur samkvæmt því dregið töluvert úr andstöðu gegn málinu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is