Miðvikudagur - 6.1 2010 - 10:43 - Ummæli ()

Þórunn Sveinbjarnardóttir á Eyjunni: Þjóðin velur á milli ríkisstjórnarinnar og forsetans

thorunn-bjallavirkjun.jpgKjósendur þurfa að velja á milli ríkisstjórnarinnar og forseta Íslands í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave-lögin sem líklega verður haldin 20. febrúar.

Þetta segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi umhverfisráðherra, á Eyjubloggi sínu í dag.

Þórunn segir að hafni kjósendur nýju Icesave-lögunum í atkvæðagreiðslunni telji hún einsýnt að ríkisstjórnin segi af sér og Jóhanna Sigurðardóttir skili umboði til stjórnarmyndunar á Bessastaði. Samþykki kjósendur lögin blasi við að forseti lýðveldisins segi af sér embætti.

„Menn verða að tefla sínar skákir til enda. Í þessari stöðu verða ekki leiknir fleiri biðleikir. Valið er fólksins og valið er skýrt: Ríkisstjórn eða forseti,“ skrifar Þórunn.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar