Fimmtudagur - 7.1 2010 - 04:42 - Ummæli ()

Bjarni og Sigmundur söðla um: Vilja enga þjóðaratkvæða- greiðslu heldur nýja samninga

bjarni-sdg.jpgFormenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafa söðlað um í afstöðu til þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-lögin. Nú telja þeir hættulegt að halda þjóðaratkvæðagreiðslu, en aðeins er vika síðan þeir báðir studdu tillögu á Alþingi um að vísa lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Auk þess hafði Sigmundur Davíð bæði hvatt forseta Íslands til að vísa lögunum í þjóðaratkvæði og fagnað ákvörðun hans.

Í Fréttablaðinu í dag telja þeir Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson það koma til greina að skipuð verði þverpólitísk sáttanefnd í Icesave-deilunni sem fái það hlutverk að skipa nýja samninganefnd sem ræða ætti við Breta og Hollendinga um lausn Icesave-deilunnar.

„Ég óttast það mjög að sú vegferð sem við færum í með því að fara að takast á um þetta mál í hörku þjóðaratkvæðagreiðslu sé alls ekki til þess fallin að skapa sátt meðal þjóðarinnar,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Fréttablaðið.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, er á sama máli. Hann segir eðlilegt að ríkisstjórnin haldi áfram að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu. Hægt sé að draga lögin til baka í stað þess að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu ef takist að ná þverpólitískri samstöðu í málinu.

Sigmundur Davíð segir mjög hættulegt að fara út í þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem líf stjórnarinnar sé undir. Það myndi leiða til harðrar baráttu þar sem ríkisstjórnin eigi allt sitt undir því að fréttir frá viðsemjendum Íslands séu sem verstar.

Þetta er nú álit Sigmundar Davíðs enda þótt hann hvatti forseta Íslands til að vísa Icesave-lögunum í þjóðaratkvæði.

Vilja nýja samninganefnd

Samningsstaða Íslands yrði mun betri ef samstaða væri hér á landi um ásættanlega niðurstöðu, að mati Bjarna og Sigmundar. Bjarni segir málefnastöðu Íslands sterka, en ef þjóðin sé klofin í herðar niður geti viðsemjendur Íslands nýtt sér það. Það muni gerast leggi ríkisstjórnin líf sitt að veði í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Æskilegt væri að ný samninganefnd verði skipuð íslenskum og erlendum sérfræðingum, segir Sigmundur Davíð. Þá ætti að fá þriðja aðila til að miðla málum í deilunni, til dæmis Evrópusambandið.

Undir það tekur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. Hún segist vilja nýja sátta- og samninganefnd um Icesave. Hinn möguleikinn sé að samþykkja lög ríkisstjórnarinnar, en hætt sé við að það skerpi á ágreiningi innanlands í stað þess að greiða úr honum.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar