eyjan.is

Mánudagur 11.01.2010 - 15:07 - Ummæli ()

Háskólinn í Ofanleiti kvaddur. Ný og betri tíð framundan hjá Háskólanum í Reykjavík

img_0225.jpgRúmlega þúsund manns gengu í dag fylktu liði frá húsnæði Háskólans í Reykjavík í Ofanleiti og sem leið lá yfir Öskjuhlíð að glænýju húsnæði háskólans við Nauthólsvík en skólastarf þar hófst formlega í dag. Um var að ræða nemendur, kennara, starfsfólk og velunnarar skólans.

Á móti hópnum tóku fráfarandi og núverandi rektor HR, þau Svafa Gröndfeldt og Ari Kristinn Jónsson auk borgarstjóra Reykjavíkur, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Hófst kennsla í kjölfar ávarpa þeirra. 

Aðeins þrjú ár eru liðin síðan fyrsta skóflustunga að nýjum skóla var tekin og tvö síðan bygging hans hófst en hingað til hefur HR verið á nokkrum hrakhólum á fjórum stöðum í bænum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is