Miðvikudagur - 13.1 2010 - 09:53 - Ummæli ()

Aðstoðarmaður Jóhönnu segir Facebook-síðuna ekki opinbera: „Eins og í eldhúsinu heima“

hrannar.jpgHrannar Björn Arnarson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, hefur birt tilkynningu á Facebook-síðu sinni þar sem segir að hún sé óopinber síða fyrir fjölskyldu sína, vini, kunningja og aðra þá sem vilji halda tengslum við sig. „Hér vil ég geta tjáð mig eins og ég geri í eldhúsinu heima. Ekkert á síðunni er ætlað til opinberrar birtingar“, segir hann.

Spurningar hafa vaknað um gildi slíkra yfirlýsinga, ekki síst þegar haft er í huga að opinber persóna í mjög háu valdaembætti á í hlut. Þá hafa rúmlega 1700 manns aðgang að efni síðunnar sem vinir Hrannars á Facebook.

Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag. Þar segir að athygli hafi vakið þegar Hrannar Björn „tíndi til neikvæða erlenda umfjöllun um Ísland í Icesave-málinu á síðunni og lét fylgja með að hún væri „með kveðju frá Bessastöðum“. Hafa sumir túlkað þetta þannig að embættismaðurinn hafi verið að hæðast að forsetanum eða ákvörðun hans.“

Í ágúst í fyrra varð nokkurt uppnám þegar Hrannar Björn lét falla ummæli um Evu Joly, ráðgjafa sérstaks saksóknara bankahrunsins, sem skilin voru sem niðrandi. Lýsti Hrannar því yfir í kjölfarið að hann sæi eftir orðum sínum.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar