Föstudagur - 22.1 2010 - 11:24 - Ummæli ()

Aldurinn að taka sinn toll á Kylie Minogue (41)

Þær eru ófáar sem líta alla jafna eins glæsilega út og ástralska stjarnan Kylie Minogue. En án farða sést að aldurinn er að taka sinn toll af henni eins og öðrum

THUMBTjáslulegt hár, næpuhvítt andlitið og klædd eins og hún sé að koma út af viðskiptafundi er Kylie ólík þeirri mynd sem oftast birtist af henni. Alltaf er hún stífmáluð í allra nýjasta fatnaðinum frá tískukóngum Mílanó eða Parísar.

Hér hafa ljósmyndarar dagblaðsins Daily Mail þó náð henni á slæmu augnabliki á leið heim frá Spáni en þar býr núverandi kærasti hennar Andres Velencoso.

Sennilega er það skítakuldinn í London sem hefur einhver áhrif enda verið við frostmark á þeim slóðum í langan tíma og töluvert kaldara en á Spáni þó ekki sé beint heitt þar heldur. 


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar