Laugardagur - 23.1 2010 - 22:21 - Ummæli ()

Yfirburðasigur Hönnu Birnu. Jórunn Frímannsdóttir fallin úr borgarstjórn að óbreyttu

jorunnfri.jpgJórunn Frímannsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins er fallin úr borgarstjórn miðað við óbreyttan fulltrúafjölda flokksins eftir prófkjörið í dag. Hún lenti í 8. sæti framboðslistans, en Sjálfstæðisflokkurinn á 7 fulltrúa borgarstjórn. Jórunn, sem er formaður Velferðarráðs Reykjavíkurborgar, stefndi á 3. sætið í kosningabaráttu sinni.

Fyrstu tölur úr prófkjörinu, sem birtar voru kl. hálf sjö í kvöld, bentu til þess að Jórunn mundi ná 7. sætinu, en þegar leið á talninguna skaust Áslaug María Friðriksdóttir, varaborgarfulltrúi og formaður Hvatar, fram fyrir hana og hélt forskoti sínu allt til loka talningar. Þá hefur Geir Sveinsson, fyrrum fyrirliði íslenska handboltaliðsins, náð ágætum árangri í prófkjörinu og hreppt 6. sætið á framboðslistanum. Hann stefndi þó ofar, á 2. sætið, og kvaðst í kvöld ekki sáttur við árangur sinn.

Talningu er nú lokið og má sjá lokaúrslit á vefsíðu Sjálfstæðisflokksins. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri hlaut yfirburðakosningu í 1. sæti listans, um 85% atkvæða. Annað sætið fékk Júlíus Vífill Ingvarsson, það þriðja Kjartan Magnússon, í fjórða sæti er Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, í fimmta sæti Gísli Marteinn Baldursson, í sjötta Geir Sveinsson, í sjöunda Áslaug María Friðriksdóttir og í áttunda sæti Jórunn Frímannsdóttir.

Í níunda sæti er Hildur Sverrisdóttir og Marta Guðjónsdóttir í tíunda sætinu.

Samtals kusu 7.173 í prófkjörinu, mun færri en í prófkjöri flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006, en þá kusu 12.453. Á kjörskrá nú voru 19.715.  Ógild í prófkjörinu voru 317 og auð 9.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar