Páll Magnússon, útvarpsstjóri, segir að kvikmyndagerðarmenn ættu að beina reiði sinni annað en að Ríkisútvarpinu. Hann segist skilja áhyggjur þeirra en fyrirtækið sé ekki í stakk búið fjárhagslega til að kaupa jafn mikið af innlendu efni og áður.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Sjónvarpsins.
Eins og fram kom á Eyjunni fyrr í dag hafa kvikmyndagerðarmenn gagnrýnt Ríkisútvarpið harðlega og sagt niðurskurð í kvikmyndaiðnaði leggja greinina í rúst. Ákvörðun stjórnar RÚV um að hætta að kaupa innlenndar kvikmyndir veiti kvikmyndargerð á Íslandi náðarhögg.
Fram kom í frétt Sjónvarpsins að mennta- og menningarmálaráðuneytið ásamt fjármálaráðuneytinu hala því fram að tekjur til RÚV hafi ekki verið skorar niður. Páll Magnússon útvarpsstjóri er þessu ósammála. Hann vísar í þjónustusamning RÚV og ríkissins og bendir á að nú vanti 305 milljónir króna upp á það að ríkið standi við sinn hluta samningsins. Í samningnum er gert ráð fyrir því að tekjur Ríkisútvarpsins af almannaþjónustu fari ekki niður fyrir það sem þær voru að raungildi 2006.
