Kristinn vill rannsóknarnefnd til að upplýsa um stuðning Íslands við innrásina í Írak 2003
Kristinn H. Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður vill að sérstök rannsóknarnefnd verði skipuð til að upplýsa um aðdraganda og ástæður þess að Ísland var á lista stuðningsþjóða innrásarinnar í Írak vorið 2003. Hann bendir á að opinber rannsókn fari nú fram í Bretlandi á þátttöku landsins í innrásinni.
Þetta kemur fram í pistli sem hann ritar á heimasíðu sína.
Kristinn segir að innrásin í Írak á vordögum 2003 sé „óumdeilanlega orðin eitt mesta glæpaverk seinni tíma“. Ráðist hafi verið inn í landið án samþykkis Sameinuðu þjóðanna, logið upp tylliástæðum um kjarnorkuógn og tengsl Saddam Hussein við Al Kaida. Hundruð þúsunda manna, kvenna og barna hafi verið drepin í Írak síðan innrásin var gerð, bæði í innrásinni sjálfri og í borgarastyrjöldinni sem innrásin kom af stað milli þjóða og trúabragðahópa. Innrásarþjóðirnar standi meira og minna ráðalausar frammi fyrir ofbeldinu sem þær leystu úr læðingi og hafi engin svör við spurningunni til hvers innrásin var gerð. Engin réttlæting sé finnanleg og þá standi eftir hinn bitri sannleikur, að innrásin var glæpaverk.
Kristinn segir að fram hefur komið að ákvörðun um stuðnings Íslands við innrásina hafi verið tekin utan ríkisstjórnarfundar og að henni hafi aðeins komið formenn stjórnarflokkanna, þáverandi forsætisráðherrra Davíð Oddsson og utanríkisráðherra Halldór Ásgrímsson. Þá hefur líka verið upplýst að málið hafi ekki verið rætt í þingflokki framsóknarmanna. Þáverandi stjórnarandstaða hafi síðar gagnrýnt málatilbúnaðinn. Nú séu þeir flokkar í ríkisstjórn og hafi meirihluta á Alþingi.
„Það er ekki að sjá að ríkisstjórnin ætli að hreyfa þessu máli,“ skrifar Kristinn H. Gunnarsson. „Því er þess krafist að skipuð verði sérstök rannsóknarnefnd óháðra manna og með löggjöf verði öllum þeim sem upplýsingar hafa um málið skylt að mæta fyrir nefndina og skýra frá öllu sem þeir vita og leggja fram öll gögn sem þeir hafa yfir að ráða. Öll gögn verði gerð opinber og vitnaleiðslur fari fram fyrir opnum tjöldum.“
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
