Það er skammt stórra högga á milli. Aðeins tvær vikur eru síðan Elín Nordegren fór fram á skilnað frá Tiger Woods og hann sjálfur fór í kynlífsmeðferð á sama tíma. Nú hafa bæði séð að sér.
Þetta er fullyrt í bandarískum slúðurmiðlum í dag en Elín hin sænska hefur síðustu dagana dvalið með Tiger sínum í kynlífsafvötnun hans á lúxusstöð í þeim efnum í Bandaríkjunum.
Þangað fór hann eftir að einar fjórtán konur stigu fram og sögðust hafa sængað með golfstjörnunni á síðustu árum og talið var víst að Elín léti hné fylgja kviði og fengi skilnað.
En knús og falleg orð frá Tiger virðast hafa fengið hana til að skipta um skoðun að sinni.
