Miðvikudagur - 27.1 2010 - 23:01 - Ummæli ()

Ólafur Ólafsson fær að halda Samskipum. Stofnar nýtt félag með stjórnendunum

olafursamskip.jpgEinn þekktasti útrásarvíkingur landsins, Ólafur Ólafsson, hefur í félagi við stjórnendur skipafélagsins Samskipa eignast félagið að nýju eftir endurskipulagningu á fjármálum þess.

Frá þessu er greint á vef Viðskiptablaðsins í kvöld.

Fram kemur í fréttinni að undanfarna mánuði hafi stjórnendur og eigendur Samskipa, sem hefur að stærstum hluta verið Kjalar, fjárfestingarfélag Ólafs Ólafssonar, unnið að endurskipulagningu á fjárhag Samskipa með viðskiptabönkum félagsins. Þar sé hollenski bankinn Fortis mikilvægastur en Arion banki sé viðskiptabanki félagsins hér á landi.  Niðurstaða liggi nú fyrir og hafi SMT (Samskip Management Team) Partners, sem er félag í eigu Ólafs Ólafssonar og stjórnenda Samskipa, eignast tæp 90% hlut í Samskipum með því að leggja til aukið hlutafé. 

Í fréttinni segir að Viðskiptablaðið hafi ekki fengið uppgefið hversu mikið hlutafé um er að ræða, en haft eftir talsmanni Arion banka að engar skuldir hafi verið afskrifaðar.

Fram kemur stjórnendurnir sem eiga félagið með Ólafi, sem verið hefur stjórnarformaður og aðaleigandi Samskipa um árabil, eru Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa á Íslandi, Kristinn Albertsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, Hjörleifur Jakobsson stjórnarformaður Samskipa hf. og forstjóri Kjalars, og Jens Holger Nielsen, forstjóri Samskipa í Hollandi.

Í fréttinni segir að Kjalar hafi áður verið eigandi um 90% hlutar í félaginu. Staða Kjalars sé óljós og sé nú unnið úr eignum félagsins í samvinnu við lánardrottna félagsins. Ein stærsta eign Kjalars séu gjaldmiðlaskiptasamningar sem félagið gerði við Kaupþing á sínum tíma og sé ágreiningur um uppgjör þeirra. Ef samningarnir verða gerðir upp eins og skilanefnd bankans vill er ljóst að félagið á enga framtíð vegna þess hve félagið er skuldugt og jafnvel þótt kröfur Kjalars nái fram að ganga þá verði félagið áfram í erfiðri stöðu. Í ljósi þess sé það niðurstaða lánardrottna Kjalars að félagið hafi ekki burði til frekari þátttöku í Samskipum.  Auk þess er það ekki talið ákjósanlegt fyrir rekstraröryggi Samskipa að eignarhald sé í óvissu, hugsanlega næstu árin.

Bankarnir Fortis og Arion töldu, eftir samningsferli með stjórnendum og hluthöfum, að Ólafur og samstarfsmenn hans gætu tryggt að lán til Samskipa yrðu greidd til baka. Bankarnir fóru fram á að lán til félagsins yrðu ekki afskrifuð, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins, heldur yrði lengt í lánum og tryggt að nýjir eigendur gætu ekki greitt arð út úr félaginu eftir eigin geðþótta. Fjárhagsleg staða Samskipa hefur verið þung og hafa kaup félagsins á erlendum félögum árið 2005 reynst því dýrpekypt. Eftir fjárhagslega endurskipulagningu er starfsemin talin standa traustum fótum.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar