Útrásarvíkingurinn Pálmi Haraldsson virðist hafa gefið viðskiptafélaga sínum Jóni Ásgeiri Jóhannessyni einn milljarð – þúsund milljónir króna – síðla árs 2008 þegar íslenska bankakerfið var að hrynja. Gjörningurinn er einn af mörgum sem skiptastjóri hins gjaldþrota eignarhaldsfélags Pálma, Fons, vill rifta.
Þetta kom fram í fréttum Sjónvarpsins í kvöld.
Fram kom að samtals eru það 9 milljarðar króna sem skiptastjórinn, Óskar Sigurðsson, vill að þrotabú Fons fái endurgreitt frá fyrri eigendum, Pálma Haraldssyni og Jóhannesi Kristinssyni.
Stærstu kröfuhafar í bú Fons eru samkvæmt frétt Sjónvarpsins íslenskir og erlendir bankar með Glitni í broddi fylkingar. Þeir hafa gert rúmlega 30 milljarða króna kröfur í búið.
Fram kom að alls hefði skiptastjórinn gefið út stefnur í þrettán málum en tvær þeirra hefðu ekki verið birtar. Stefnurnar væru gefnar út vegna tilefnislausra reikninga, niðurfellingu skulda, greiðslna til félags í eigu Pálma á Tortóla og málverkasölu svo fátt eitt sé nefnt.
Sjónvarpið sagði að Jón Ásgeir Jóhannesson, sem var náinn viðskiptafélagi Pálma í mörg ár, væri krafinn um einn milljarð króna sem greiddur var inn á persónulegan reikning hans sem gjöf eða lán. Fréttastofa Sjónvarpsins kvaðst hafa heimildir fyrir því að greiðslunni hafi verið velt tólf sinnum í gegnum bókhald Fons, að því er virðist til að fela hana. Hún væri talinn týndi hlekkurinn í Stím-málinu svokallaða.
Óskar Sigurðsson skiptastjóri vildi ekki tjá sig um það hvort einhver af málunum mundu enda inni á borði sérstaks saksóknara.
215
97