Hvorki fleiri né færri en fjórir einstaklingar telja sig best til þess fallna að leiða flokk Framsóknar í komandi sveitastjórnarkosningum. Sitjandi oddviti, Ómar Stefánsson, Una María Óskarsdóttir, fyrrum bæjarfulltrúi, Gísli Tryggvason, sem starfað hefur sem Talsmaður neytenda og Einar Kristján Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks.
Prófkjör Framsóknarflokksins fer fram þann 27. febrúar næstkomandi og hefur Eyjan heimildir fyrir að baráttan sé þegar komin í gang þó aðeins sé sólarhringur frá því að framboðsfrestur rann út.
Miðað við gengi flokksins í síðustu bæjarstjórnarkosningum þar sem Framsókn kom aðeins einum manni að er áhuginn sannarlega mikill því einir þrettán einstaklingar bjóða sig fram að þessu sinni. Aðeins ellefu höfðu áhuga fyrir fjórum árum.
Stefnir í töluvert meiri átök fyrir sitjandi oddvita, Ómar Stefánsson, en fyrir fjórum árum þegar hann var í raun eini frambjóðandinn sem aðeins stefndi að efsta sætinu. Þá atti hann kappi við Samúel Örn Erlingsson og Unu Maríu líka en þau bæði sættu sig þó við neðri sæti en það efsta.
Frambjóðendur Framsóknarflokksins í Kópavogi eru þessir:
Alexander Arnarson, málarameistari og formaður handknattleiksdeildar HK
Andrés Pétursson, skrifstofu- og fjármálastjóri og formaður Blikaklúbbsins
Baldvin Samúelsson, tryggingaráðgjafi
Birna Árnadóttir, húsmóðir
Einar Kristján Jónsson, rekstrarstjóri
Gestur Valgarðsson, verkfræðingur
Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda
Kristján Matthíasson, efnafræðingur
Ólöf Pálína Úlfarsdóttir, kennari
Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs
Ragnhildur Konráðsdóttir, ráðgjafi
Sigurjón Jónsson, markaðsfulltrúi
Una María Óskarsdóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur
