Nöfn forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, og Global Center, ráðgjafarfyrirtækis Kristjáns Guy Burgess, aðstoðarmanns utanríkisráðherra, hafa undanfarna daga verið nefnd í fréttum erlendra fjölmiðla í tengslum við umfjöllum um vísindahneyksli og tug milljóna styrkveitingu sem talin er orka tvímælis.
Málið varðar formann loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna, Indverjann R. K. Pachauri, en hann hefur verið ásakaður fyrir að hafa misnotað stöðu sína til að afla fjár fyrir alþjóðlega rannsóknarstofnun sína, TERI, til verkefnis sem snýr að bráðnum jökla á Himalaja-fjöllum. Hluti fjár sem hann fékk árið 2008 til slíkra rannsókna var fyrir milligöngu Global Center, ráðgjafarfyrirtækis Kristjáns Guy Burgess. Kristján mun hafa tengst dr. Pachauri fyrir milligöngu Ólafs Ragnars Grímssonar forseta sem er góðkunningi Indverjans og hefur í opinberum fyrirlestri tekið undir kenningar um öra bráðnun jökla á Himalaja, en þær hafa reynst á sandi byggðar. Dr. Pachauri hefur komið hingað til lands og dvalið í gestabústað forseta Íslands.
Samkvæmt ársskýrslu hinnar virtu Carnegie-stofnunar í New York fyrir árið 2008 fékk Global Center Kristjáns Guy Burgess það ár styrk til tveggja ára að upphæð 500 þúsund dollarar, tæpar 64 milljónir íslenskra króna, til að rannsaka áhrif bráðnunar jökla á Himalajafjöllum.
Erfitt hefur reynst að fá upplýsingar frá Kristjáni Guy Burgess um hvernig þessi styrkur er til kominn og hugsaður. Kristján gegnir nú starfi aðstoðarmanns Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. Hann hefur ekki svarað símhringum blaðamanns Eyjunnar og fimm skriflegum spurningum í tölvupósti frá Eyjunni svaraði hann loks í gær með aðeins einni setningu.
Áður en Kristján Guy Burgess varð aðstoðarmaður utanríkisráðherra vann hann ráðgjafarstörf fyrir Björgólf Thor Björgólfsson og fleiri útrásarvíkinga, Ólaf Ragnar Grímsson forseta og a.m.k. tvö ráðuneyti sem Samfylkingin hefur stýrt, iðnaðarráðuneytið og utanríkisráðuneytið, en Kristján er félagi í Samfylkingunni og að auki svili Dags B. Eggertssonar varaformanns flokksins. Í forsetabók Guðjóns Friðrikssonar, sem kom út 2008, er talað um Global Center sem nokkurs konar leynivopn Ólafs Ragnars Grímssonar. Það hafi sinnt ýmsum verkefnum sem forsetinn hafi haft frumkvæði að eða gengist fyrir. Höfundur bókarinnar lætur svo ummæli að segja megi að Ólafur Ragnar forseti, Örnólfur Thorsson forsetaritari og Kristján Guy myndi þríeyki sem vinni náið saman að mörgum málum.
Fyrir ári síðan greindi Eyjan frá því að beinar greiðslur frá iðnaðarráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu og forsetaembættinu til Global Center næmu um 7 milljónum króna. Ekki fengust þá greinargóðar upplýsingar um hvers eðlis verkefnin væru.
Það var Sunday Times í London sem skýrði frá því 17. janúar síðast liðinn að kenningar um öra bráðnun jökla Himalaja, sem vakið höfðu gífurlega athygli, væru ýkjur og tómar getgátur sem klæddar hefðu verið í vísindalegan búning af mönnum sem ættu að vita betur, þar á meðal dr. Pachauri og starfsmönnum í alþjóðlegri rannsóknarstofnun hans, TERI (The Energy and Resources Institute). Því hafði verið haldið fram að jöklarnir yrðu horfnir árið 2035 og leiddi það til mikils áhuga á því að finna leiðir til að koma veg fyrir umhverfisslys sem af gæti hlotist. Aflaði TERI sér hárra styrkja víða um heim til rannsókna á málinu.
Á sunnudaginn greindi breska blaðið síðan frá gagnrýni á dr. Pachauri sem sakaður væri um að hafa hagnýtt sér formennskuna í loftslagsnefndinni í gróðaskyni til að afla fjár til eigin rannsóknarstofnunar. Nefndin gaf út skýrsklu þar sem kveðið var fast að orði um hættuna á bráðnum Himalajajöklanna. Í frétt blaðsins var sérstaklega fjallað um það að dr. Pachauri hefði tekist að fá frá Carnegie-stofnuninni í New York styrk að upphæð 500 þúsund dollarar, 310 þúsund stelringspund, til Himalaja-verkefnins. Hefði styrkurinn upphaflega verið veittur til íslenskrar stofnunar, Global Center, sem hefði síðan með samþykki Carnegie miðlað honum til TERI.
Margir hafa orðið til þess að krefjast afsagnar dr. Pachauri, ekki síst á Indlandi, en hann hefur algjörlega hafnað því, en viðurkennir hins vegar að mistök hafi verið gerð.

Dr. Pachauri hefur nokkrum sinnum komið til Íslands sem gestur Ólafs Ragnars Grímssonar, en forseti Íslands hefur átt þátt í að boða kenningar hans um bráðnum Himalajajökla í fyrirlestrum erlendis. Eins og Eyjan greindi frá á dögunum flutti forsetinn ræðu í Ohio í desember þar sem hann tók undir kenningarnar um að jöklar Himalaja yrðu horfnir innan fárra áratuga.
Í frétt á heimasíðu TERI 15. janúar síðast liðinn kemur fram að stofnunin eigi samstarf við ríkisháskólann í Ohio og Háskóla Íslands um rannsóknir á bráðnun jökla. Hafi forseti Íslands beitt sér fyrir samstarfi þessara stofnana.
Þær fimm spurningar, sem blaðamaður Eyjunnar sendi Kristjáni Guy Burgess í tölvupósti eftir árangurslausar tilraunir til að ná símasambandi við hann, voru eftirfarandi: 1) Hver nákvæmlega er/var aðkoma Global Center að málefnum TERI? Talað er um að fé hafi farið milli aðila með milligöngu GC. Hversu margir aðilar styrktu eða sendu eða hyggjast senda TERI fé gegnum stofnun þína? Hver er/var heildarupphæðin og hver er/var hlutur GC af þeim upphæðum? 2) Sá Global Center um að afla þessara fjármuna fyrir hönd TERI? Með hvaða hætti þá? 3) Hvaða sérfræðiþekkingu býr Global Center yfir vegna fjármálaþjónustu annars vegar og loftslagsmála hins vegar? 4) Vitað er að mörg viðskiptasambönd Global Center urðu til fyrir tilstilli forseta Íslands. Kom hann að þessu ákveðna máli og þá með hvaða hætti? 5) Hefur þú í embætti aðstoðarmanns utanríkisráðherra nýtt þér þá stöðu til að koma stofnun þinni á framfæri erlendis?
Eina svar aðstoðarmanns utanríkisráðherra við þessum spurningum var eftirfarandi: „Ég hef ekki komið að þessu alþjóðlega vísindaverkefni frá því ég varð aðstoðarmaður ráðherra fyrir ári [þ.e. í febrúar 2009]. Styrkfénu er óráðstafað og er enn varðveitt hjá Carnegie-stofnuninni. Ekkert hefur verið greitt til Teri.“
Vegna dvalar forseta Íslands utanlands hefur ekki tekist að fá skýringar forsetaembættisins á þætti þess í málinu.
146
98