Fimmtudagur - 28.1 2010 - 11:26 - Ummæli ()

Samfylkingin: Uppnám meðal frambjóðenda eftir að séra Bjarni braut prófkjörsreglur

bjarnikarlprofkj.jpgUppnám ríkir meðal frambjóðenda í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík eftir að einn úr hópnum, séra Bjarni Karlsson, birti stóra auglýsingu í Fréttablaðinu í dag, en samkvæmt reglum prófkjörsins er það óheimilt.

Í auglýsingunni lýsa 15 kunnir flokksmenn yfir stuðningi við framboð séra Bjarna og eru birtar myndir af þeim öllum. Meðal stuðningsmannanna eru Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Svanur Kristjánsson prófessor, Óskar Guðmundsson rithöfundur og Ellen Kristjánsdóttir söngkona.

Í samtali við vefmiðillinn Vísi í morgun sagðist Páll Halldórsson, formaður kjörstjórnar, hafa heyrt af auglýsingunni en ekki hafa náð að kynna sér efni hennar. Kjörstjórn fylgist með að reglum prófkjörsins sé framfylgt og vekur athygli frambjóðenda á því ef hún telur að útaf þeim sé brugðið.

Prófkjör Samfylkingarinnar hófst á þriðjudaginn og lýkur á laugardaginn. Þrettán eru í framboði. Flokkurinn fékk fjóra fulltrúa kjörna í borgarstjórnarkosningunum árið 2006.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar