Fimmtudagur - 28.1 2010 - 10:24 - Ummæli ()

Þjóðminjasafnið safnar munum og gögnum um hrunið og Búsáhaldabyltinguna

busahaldabyltingarsyning.jpgÞjóðminjasafn Íslands vinnur nú að söfnun heimilda um kreppuna, hrunið og Búsáhaldabyltinguna. Á safninu stendur yfir sýningin Fyrir ári þar sem sjá má muni sem safnast hafa og komu við sögu í mótmælunum í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Af þessu tilefni hefur verið tekin saman spurningaskrá sem send er út um þessar mundir. Safnið hefur áhuga á að ná til fólks sem býr yfir upplýsingum um framangreint efni.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Unnt er að sækja spurningaskrána á heimasíðu Þjóðminjasafnsins og senda svör í tölvupósti á netfangið agust@thjodminjasafn.is.

Öll svör verða varðveitt nafnlaus og því ópersónugreinanleg. Með spurningaskránni er leitast við að ná til sem breiðasts hóps í öllum landshlutum, jafnt karla sem kvenna.

Þeir sem fremur kjósa að svara ekki stafrænt geta fengið spurningaskrána senda í pósti ásamt umslagi sem setja má ófrímerkt í póst og pappír til að svara á með því að hafa samband við Þjóðminjasafnið í síma 530 2200 eða að senda tölvupóst á netfangið agust@thjodminjasafn.is.

Þjóðminjasafnið vill hvetja fólk til að leggja söfnuninni lið og varðveita þannig mikilvæga þekkingu sem annars er hætt við að færi forgörðum.

Þjóðminjasafn Íslands hefur í um hálfa öld safnað heimildum um þjóðhætti með spurningaskrám. Spurt hefur verið um lífshætti, siði og venjur fyrr á tímum en í seinni tíð hefur söfnunin einnig beinst að samtímanum. Svör heimildarmanna eru varðveitt í skjalasafni stofnunarinnar og slegin inn í stafrænan gagnagrunn. Aðgangur að grunninum er þó takmarkaður og háður sérstöku leyfi.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar