Íslandspóstur vill að bréfberum verði fækkað og póstflokkum verði fjölgað. Fyrirtækið hyggst óska eftir þessum breytingum og öðrum, í formlegu erindi, sem sent verður Póst og fjarskiptastofnun á næstu dögum.
Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins í dag.
Fram kom að hugmyndir Íslandspósts, sem er opinbert fyrirtæki, voru kynntar á fundi með bréfberum í vikunni. Þar hafi verið greint frá því að Íslandspóstur vildi bjóða upp á þann möguleika að sendandi geri ekki kröfu um að bréf sem frá honum fer verði borið út strax. Samkvæmt lögum ber Íslandspósti að bera út daglega. Með því að bjóða sendendum upp á þessa þjónustu, á lægra verði, vonist forsvarsmenn Íslandspósts til að ná fram hagræðingu í rekstri meðal annars með því að fækka bréfberum á höfuðborgarsvæðinu.
Rætt var við Ingimund Sigurpálsson, forstjóra Íslandspósts, sem sagði, að yrðu hugmyndir Íslandspósts að veruleika mundi losna um nálægt 60 störf. Hann sagðist vonast til að hægt verði að komast hjá uppsögnum með því að ráða ekki í störf sem losna.
Fram kom að Póst- og fjarskiptastofnun hefur fengið lauslega kynningu á hugmyndum Íslandspósts. Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri póst og fjarskiptastofnunar sagðist í samtali við RÚV ekki geta tekið afstöðu til hugmynda Íslandspósts fyrr en formlegt erindi bæirst stofnuninni og þá yrði einnig tekin afstaða til þess hvort þær falli að lögum eða hvort lagabreytinga sé þörf.
