eyjan.is

Fimmtudagur 04.02.2010 - 07:11 - Ummæli ()

Reyna að fá hagstæðari lánakjör vegna Icesave í Noregi eða ESB

icesave12.jpgTalið er að fundur Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra með José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar ESB, í Brussel í dag og fundir hennar með öðrum lykilmönnum ESB tengist hugmyndum Samfylkingarinnar um að hægt sé að semja um nýja lánsfjármögnun vegna Icesave við sjóð á vegum ESB, sem feli í sér miklu hagstæðari lánskjör en samið var um við Breta og Hollendinga.

Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins fer því þó fjarri að samhljómur sé í áherslum stjórnarflokkanna í þessum efnum, því Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hefur reifað samskonar hugmyndir um nýja lánsfjármögnun og mun hagstæðari vexti vegna Icesave með því að semja um lán frá Norðmönnum, á fundum sem fulltrúar stjórnarandstöðunnar hafa ítrekað setið á með forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar, þar sem reynt hefur verið að ná þverpólitískri samstöðu um framhald Icesave-viðræðna.

Þá hafa fulltrúar stjórnarandstöðunnar sagt við Morgunblaðið að ráðherrar í ríkisstjórn Íslands hafi rætt um að hægt væri að semja um vexti á bilinu 2 til 3,7 prósent. Niðurstaða eigi að liggja fyrir innan örfárra daga. Þá segir í Morgunblaðinu að stjórnarandstaðan efist um vilja stjórnarinnar til að taka um Icesave-samninginn. Stjórnin vilji ekki ræða neitt nema vaxtamálin.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is