eyjan.is

Föstudagur 05.02.2010 - 13:14 - Ummæli ()

Tekjuhæst í Hollywood 2009: Topp 40 listi

Kreppan kom til Hollywood líkt og allstaðar annarsstaðar í heiminum og leikstjórar og framleiðendur þar á bæ hafa alls ekki úr eins miklu að moða og undanfarin ár -þrátt fyrir að tekjurnar hafi aldrei verið hærri í sögu iðnaðarins en einmitt árið 2009.

gallery-msg-126533177383-3.jpg

Ástæða þess að Hollywood liðið þarf að herða sultarólina, ef svo mætti kalla, er fyrst og fremst sú að innlendir og erlendir (þá sérstaklega erlendir) fjárfestar hafa ekki lengur tök á að setja fé sitt í framleiðslu kvikmynda en þetta verður þó aldrei til þess að skemmtiefni hætti að berast úr draumaborginni og sumir virðast algerlega tryggðir gegn öllu floppi.

Meðal þeirra er t.d. Daniel Radcliffe sem mun lifa góðu lífi á Harry Potter það sem eftir er ævinnar, en hann er með um milljón bandaríkjadala í árlegar tekjur af gömlum myndum um galdrastrákinn.

Þessi listi var tekinn saman af Bandaríska tímaritinu Vanity Fair og birtur á netinu í dag. Eftirfarandi eru ríkustu einstaklingarnir í Hollywood þar sem árstekur eru á bilinu 16-2 milljarðar.

1 Michael Bay

Áætlaðar tekjur 2009: 16 milljarðar, þar af níu og hálfur milljarður fyrir leikstjórn og meðframleiðslu á kvikmyndinni Transformer.

Stærstur hluti annara tekna tengist svo réttindum á sölu leikfanga tengdum myndinni og öðrum varningi.

2 Steven Spielberg

Áætlaðar tekjur 2009: 85 milljónir dollara eða rúmir 10 milljarðar íslenskra króna. Þar af fékk hann um 50 milljónir dala í tekjur frá Universal skemmtigarðinum en þetta er hluti af samningi sem Spielberg gerði árið 1987. 20 milljónir dala eða um tveir og hálfur milljarður koma í vasann fyrir að leikstýra ævintýrum Tinna og restin er m.a. ágóði af sölu á ýmsum varningi.

3 Roland Emmerich

Áætlaðar tekjur 2009: 70 milljónir dala eða um 9 milljarðar króna fyrir leikstjórn og framleiðslu myndarinnar 2012.

4 James Cameron

Áætlaðar tekjur 2009: 50 milljónir bandaríkjadala eða um 6.5 milljarðar íslenskra fyrir að leikstýra, skrifa og framleiða Avatar sem er tekjuhæsta mynd allra tíma.

5 Todd Phillips

Áætlaðar tekjur 2009: 44 milljónir bandaríkjadala eða fimm og hálfur milljarður ísk. 39 fyrir að leikstýra The Hangover og 5 milljónir dala fyrir að framleiða og leikstýra Due Date með Robert Downey Jr.
gallery-msg-126533176555-3.jpg6. Daniel Radcliffe

Hinn kornungi leikari Daniel Radcliffe kemur svo í sjötta sæti með rúma fimm milljarða íslenskra króna í árstekjur ársins 2009.

Þar af eru tvisvar sinnum 20 milljónir bandaríkjadala fyrir að leika í tveimur Harry Potter myndum (tveir og hálfur milljarður íslenskra króna).

Myndirnar, sem munu vera lokaspretturinn á sögunni eru væntanlegar til sýninga á þessu og næsta ári.

Eina milljón dala, eða um 127 íslenskar milljónir, fékk Daniel á bankabókina sem þóknun fyrir leik sinn í eldri Harry Potter myndum.

Félagar hans úr  Potter genginu, þau Rubert Grint og Emma Watson, eru í 14 og 15 sæti.

Eftirfarandi 35 sæti verma svo þessir framleiðendur, leikarar og leikstjórar:

5-3 milljarðar í árstekjur 2009: gallery-msg-12653317642-3.jpg

7. Ben Stiller

8. Tom Hanks

9. J. J. Abrams

10. Jerry Bruckheimer

11. Tyler Perry

12. Adam Sandler

13. Denzel Washington

14. Emma Watsongallery-msg-126533177257-3.jpg

15. Rupert Grint

16. Owen Wilson

17. Nicolas Cage

18. Russell Crowe

19. Cameron Diaz

3 – 2 milljarðar í árstekjur 2009

20. Brian Grazer og Ron Howardgallery-msg-126533178439-3.jpg

21. Johnny Depp

22. Steve Carell

23. Robert De Niro

24. Sarah Jessica Parker

25. Katherine Heigl

26. Shawn Levy

gallery-msg-126533178194-3.jpg27. Oren Peli og Jason Blum

28. Robert Downey

29. George Clooney

30. Matt Damon

31. Reese Witherspoon

32. Angelina Jolie

33. Jennifer Aniston

34. Sandra Bullockgallery-msg-126533177783-3.jpg

35. Robert Pattinson

36 Clint Eastwood

37. Kristen Stewart

38. Mark Wahlberg

39. Shia LaBeouf

40. Brad Pitt


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is