Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er farin í frí til útlanda þótt Icesave-deilan sé óleyst og stjórnmálamenn, embættismenn og sérfræðingar hér á landi og erlendis leggi nótt við dag til að leysa málið. Ríkisstjórnarfundur, sem venjulega er á þriðjudögum, verður ekki haldinn.
Kona Jóhönnu fór með henni í fríið. Þær fóru utan í morgun. Ekki er vitað hvenær þær koma aftur, en stefnt mun að því að halda fund í ríkisstjórninni í lok næstu viku.
Frá þessu er sagt á vefmiðlinum Vísi.
Ekki kom fram hver gegnir embætti forsætisráðherra í fjarveru Jóhönnu. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra vinnur áfram að lausn Icesave-deilunnar um helgina og hefur m.a. hita forystumenn stjórnarandstöðunnar á fundi um málið í dag.
