Arion banki hefur stefnt Björgólfi Thor Björgólfssyni vegna vanefnda á greiðslu á láni sem Björgólfsfeðgar tóku hjá gamla Búnaðarbankanum til að greiða stóran hluta af kaupverði gamla Landsbankans. Bankinn stefnir Björgólfi Thors einum, þar sem faðir hans er þegar gjaldþrota.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Lánið var veitt árið 2003 til eignarhaldsfélags þeirra feðga, Samson ehf, og nam það upphaflega um 3,4 milljörðum króna. Björgólfsfeðgar hafa ekkert greitt af láninu og stendur skuldin í um sex milljörðum króna í dag.
Tilvist lánsins var ekki gerð opinber fyrr en eftir bankahrun, en fram að því var almennt talið að Björgólfsfeðgar hefðu greitt kaupverð Landsbankans út í hönd með meintum hagnaði þeirra í viðskiptum í Rússlandi. Þrátt fyrir verulegan hagnað af rekstri bankans og milljarða arðgreiðslur til Björgólfsfeðga á árunum 2003 til 2008 greiddu þeir ekkert af láninu.
Í apríl í fyrra sagði Björgólfur Thor að þeir feðgar ætluðu ekki að hlaupast burt frá skuldinni, eins og Eyjan greindi frá.
Talsmaður Björgólfs Thors sagði við fréttastofu Stöðvar 2 að Björgólfi væri ekki kunnugt um málshöfðunina og að hann vissi ekki betur en að hann væri enn í samningaviðræðum um skuldina.
