Innlent - mánudagur - 8.2 2010 - 20:23

Fundur í HR: Skuggastjórnendur í íslenskum fyrirtækjum sem hægt er kalla til ábyrgðar?

kaupholl_bygging_stor.jpgMörgum mun þykja að málfundafélag Lögréttu, félags laganema við Háskólann í Reykjavík, taki forvitnilegt mál til umræðu á opnum fundi á morgun, en þá verður rætt um svokallaða skuggastjórnendur í íslensku viðskiptalífi. Um er að ræða menn sem ráða félögum og fyrirtækjum en koma ekki fram og vilja ekki láta vita sé að þeir séu við stjórnvölinn.

Framsögumenn á fundinum verða Hróbjartur Jónatansson hæstaréttarlögmaður og Guðrún Björk Bjarnadóttir lögmaður hjá Samtökum atvinnulífsins og aðjúnkt við lagadeild HR.

Í fundarboði HR segir að skuggastjórnendur (e.: Shadow Directors) sé hugtak sem ekki sé að finna í íslenskum rétti, en sé að finna víða í nágrannalöndum okkar, t.a.m. í breskum rétti. Almenn skilgreining á skuggastjórnendum sé að þeir komi ekki fram og vilji ekki að það sé vitað að þeir séu við stjórnvölinn. Þeir hafi oft á tíðum tögl og hagldir í félögum án þess að þeir séu skráðir stjórnendur. Því vakni sú spurning hver séu réttindi þeirra, skyldur og möguleg ábyrgð.

Fram kemur að í breskum rétti beri skuggastjórnendur sömu réttindi og skyldur og raunverulegir stjórnendur. Enginn munur sé gerður á skuggastjórnendum og raunverulegum stjórnendum félags. Skilyrði fyrir að um skuggastjórnanda sé að ræða skv. breskum rétti eru:
1. Viðkomandi þarf að hafa gefið stjórn félagsins fyrirmæli.
2. Stjórnin þarf að hafa farið að fyrirmælum hans.
3. Ákveðið hegðunarmynstur þarf að eiga sér stað yfir lengri tíma, eitt tilvik nægir ekki.

Á fundinum í HR verður reynt að velta því upp hvort skuggastjórnendur stjórni í reynd einhverjum félögum hér landi og þá hver möguleg ábyrgð þeirra geti orðið og hvernig íslenskur félagaréttur geti tekið á þessu. Spurt verður hver sé til að mynda ábyrgð skuggastjórnenda á efnahagsruninu og hver séu tengsl stórra fjárfesta (skuggastjórnenda) við bankana.

Fram kemur í fundartilkynningunni að leiða megi líkur að því að eyða sé í íslenskum lögum sé hægt að sýna fram á að skuggastjórnendur séu víða við stjórnvölinn í íslenskum fyrirtækjum og félögum.

Fundurinn á morgun hefst kl. 13:10 í stofu 231b í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, og stendur í rúma klukkustund. Gert er ráð fyrir fyrirspurnum úr sal að loknum framsöguræðum.


Ekki eru leyfð ummæli við þessa frétt.