eyjan.is

Mánudagur 08.02.2010 - 20:44 - Ummæli ()

Kæra Þorleifs í forvali VG: Stuðningsmenn Sóleyjar fóru með kjörseðla heim til flokksfélaga

soleytomas.jpgDæmi voru um að stuðningsmenn Sóleyjar Tómasdóttur í forvali Vinstri grænna í síðustu viku fóru með kjörseðla heim til flokksfélaga og tóku þannig við utankjörfundaratkvæðum viðkomandi.

Þetta er ástæða þess að Þorleifur Gunnlaugsson, keppinautur Sóleyjar um fyrsta sæti listans, kærði utankjörfundaratkvæðagreiðsluna, einsog Eyjan sagði frá í dag.

Almenn regla er í prófkjörum stjórnmálaflokkanna að kjörfundur skuli fara fram á tilteknum stöðum og á það jafnframt við um utankjörfund, enda er ógerlegt að sannreyna með hvaða hætti viðkomandi kjósendur greiddu atkvæði ef gengið var frá því fjarri kjörstöðum.

„Sætti mig við niðurstöðuna en þetta snýst um heiðarleika“

Í samtali við Eyjuna vildi Þorleifur taka það skýrt fram að hann hefði gert þessa athugasemd um miðjan laugardag, eða áður en kjörfundi lauk. Hann væri því ekki að kæra atkvæðagreiðsluna eftir á, í ljósi þess að hafa beðið lægri hlut.

„Ég er ekki að falast eftir breytingu á úrslitum í forvalinu. En hér er um svo veigamikið atriði að ræða í leikreglum lýðræðisins, að ég varð gera þessa athugasemd. Í mínum huga snýst þetta um lýðræði og heiðarleika í stjórnmálum og þar er heiður flokksins að veði. Vinstri grænir geta ekki unað við vinnubrögð af þessu tagi. Af þeim sökum verður að taka á þessu máli, þannig að það muni ekki endurtaka sig, en ekki endilega til að breyta úrslitunum,“ segir Þorleifur.

Kjörstjórn VG hefur enn ekki afgreitt kæru Þorleifs, en kærufrestur rennur út klukkan 10 í kvöld. Mjög mjótt var á munum í kosningu um fyrsta sætið, en í samtali við Eyjuna fyrr í dag taldi Stefán Pálsson, formaður kjörstjórnar, að úrslitin yrðu engu að síður hin sömu þótt utankjörfundaratkvæði yrðu lýst ógild. Hann sagði þó að hlutfall utankjörfundaratkvæða hefði verið talsvert frábrugðið almennri kosningu á kjörstað og að bilið milli Sóleyjar og Þorleifs myndi minnka talsvert ef utankjörfundur verður ekki talinn með.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is