Mánudagur - 8.2 2010 - 15:35 - Ummæli ()

Madonna komin með augastað á nýju barni: 24 ára spænsk karlfyrirsæta varð fyrir valinu

Madonna og Jesuz Luz voru ekki fyrr hætt saman en að fréttir bárust af því að nú væri hún komin með nýjan í sigtið.

vadgenewpiece.jpg

Í þetta sinn er það hinn 24 ára gamli Jón en hann starfar sem fyrirsæta og er ættaður frá Spáni -heitir fullu nafni Jon Kortajarena.

Þau Madonna og Jon hittust við frumsýningu myndarinnar A single man eftir Tom Ford en heimildarmenn Daily Mail segja að Madonna hafi ekki getað slitið augun af honum. Hún hafi daðrað skammarlaust við drenginn og síðar spurst fyrir um hann, eins og t.d við hvað hann starfaði og hvernig hægt væri að nálgast hann.

Eftir frumsýninguna fóru þau svo saman ásamt hópi vina út að borða.

Jon mun hafa orðið hálf skelkaður við daður frá „Kleópötru poppheimsins“ en jafnframt upp með sér. Nú er bara að bíða og sjá hvað setur.

vadgepiece2.jpg

vadgepiece1.jpg

vadgepiece41.jpg


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar