Mánudagur - 8.2 2010 - 07:21 - Ummæli ()

Morgunblaðið segir Samfylkingu vilja fá Framsókn inn í ríkisstjórn. Rangt, segir ráðherra

rikisstjorn_8mai092.jpgMorgunblaðinu segir frá því í dag að Samfylkingin kanni möguleika á að fá Framsóknarflokkinn inn í ríkisstjórnina. Að sögn blaðsins sé komin upp þreyta hjá Samfylkingu með að VG forðist að taka ákvarðanir og vilji engar framkvæmdir heimila. Þó njóti Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, enn traust Samfylkingarfólks, en hann hafi þó ekki sömu stjórn á eigin flokki og hann hafði áður.

Frétt Morgunblaðsins er ekki studd neinum nafngreindum heimildum.

Síðast í gær hafnaði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, þrálátum sögusögnum undanfarinna daga um að Framsókn hefði verið boðið flokknum aðild að ríkisstjórninni.

Í Morgunblaðinu í dag segir Sigmundur Davíð að réttara væri að mynda þjóðstjórn, ef núverandi stjórnarmeirihluti þyki of veikur.

Iðnaðarráðherra: Fréttinn er uppspuni

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, sagði í morgunútvarpi Rásar tvö að frétt Morgunblaðsins væri hreinn uppspuni. Hún sagði engar þreyfingar hafa farið fram í þá veru sem nefnt er í blaðinu. Vildi hún ekki kannast við að þreyta væri komin í stjórnarsamstarfið.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar